Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Evu Dögg Davíðsdóttur fyrir mjög góða yfirferð á vinnu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar við þetta ágæta mál. Við höfum rætt það í svolítinn tíma og ég held að það fari ágætlega á því að byrja á byrjuninni þar sem maður hefur skynjað að það gætir oft ákveðins misskilnings í umræðunni um hvaða stofnanir hér er að ræða. Það er þannig að á undanförnum árum hefur mikil umræða átt sér stað um mikilvægi þess að koma á fót mannréttindastofnun á Íslandi og hafa ýmis skref verið tekin í þá átt.
Mannréttindamál voru færð til forsætisráðuneytisins frá dómsmálaráðuneyti með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar, sem birtur var sama dag, er kveðið á um að nýrri mannréttindastofnun skuli komið á fót. Til undirbúnings stofnunar Mannréttindastofnunar Íslands ákvað forsætisráðherra að vinna yfirlit yfir stöðu mannréttindamála á Íslandi í formi grænbókar með sérstakri hliðsjón af mannréttindaeftirliti. Við vinnu grænbókar fór fram víðtækt samráð við félagasamtök, stofnanir og almenning, m.a. með opnum samráðsfundum forsætisráðherra um mannréttindamál um allt land. Grænbók um mannréttindi var svo birt í samráðsgátt stjórnvalda í janúar 2023 og var endanleg útgáfa birt á vef forsætisráðuneytisins síðar sama ár. Grænbókin var mikilvægur þáttur í undirbúningi þessa frumvarps en með henni fylgdi m.a. sérstakt fylgirit um sjálfstæðar, innlendar mannréttindastofnanir. Í grænbókinni voru dregin fram lykilviðfangsefni á sviði mannréttinda á næstu árum og var eitt af þeim að koma á fót sjálfstæðri, innlendri mannréttindastofnun. Mannréttindastofnun var jafnframt talin ein af þeim aðgerðum sem myndi skila mestum ávinningi við að raungera þá framtíðarsýn að koma Íslandi í fremstu röð þegar kemur að því að tryggja öllum íbúum grundvallarmannréttindi.
Sjálfstæðar, innlendar mannréttindastofnanir þurfa að uppfylla svokölluð Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna um mannréttindastofnanir sem voru samþykkt af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1993. Viðmiðin eru safn meginreglna um uppbyggingu, hlutverk, stöðu og starfsemi mannréttindastofnana. Parísarviðmiðin gera ekki kröfu um að skipulag mannréttindastofnunar sé með ákveðnum hætti heldur kveða þau á um almenn skilyrði sem slíkar stofnanir þurfa að uppfylla. Skilyrðin eru m.a. eftirfarandi: Kveðið skal á um hlutverk stofnunarinnar í almennum lögum eða stjórnskipunarlögum. Fjárhagslegt og stofnanabundið sjálfstæði stofnunarinnar skal vera tryggt og skal hún m.a. hafa eigið starfslið og starfsstöð. Stofnunin skal hafa víðtækt umboð til að vinna að eflingu og vernd mannréttinda og hafa víðtækan rétt til upplýsinga sem varða mannréttindi. Almenningur þarf að geta leitað til stofnunarinnar til að fá leiðbeiningar eða ráðgjöf og áhersla er lögð á fjölræði, þ.e. dreifingu valds og að þau sem koma að ákvarðanatöku endurspegli borgaralegt samfélag.
Ég held að það sé rétt að nefna, forseti, að íslenska ríkið hefur ítrekað fengið athugasemdir og tilmæli frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum um að koma á fót sjálfstæðri, innlendri mannréttindastofnun sem uppfylli að fullu fyrrnefnd Parísarviðmið. Ísland fékk til að mynda slík tilmæli í þeim þremur allsherjarúttektum á stöðu mannréttindamála sem farið hafa fram hér á landi, árið 2011, 2016 og 2022. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem fullgiltur var fyrir Íslands hönd árið 2016, er fyrsti alþjóðlegi mannréttindasamningur sem kveður beinlínis á um að til staðar þurfi að vera sjálfstæð, innlend mannréttindastofnun sem hafi eftirlit með samningnum og er tilvist slíkrar stofnunar því talin forsenda þess að hægt sé að lögfesta samninginn hér á landi.
Innan Evrópuráðsins hefur verið lögð æ ríkari áhersla á mikilvægi mannréttindastofnana og árið 2021 samþykkti ráðherranefnd Evrópuráðsins tilmæli um þróun og styrkingu slíkra stofnana. Í tilmælunum er því beint til aðildarríkja að leita allra mögulegra leiða til að koma sjálfstæðri, innlendri mannréttindastofnun á laggirnar. Bent er á að mannréttindastofnanir gegni lykilhlutverki þegar kemur að því að efla og vernda mannréttindi. Mannréttindastofnunum er ætlað að byggja ákveðna brú á milli stjórnvalda og félagasamtaka og eru þannig mikilvægur hlekkur í því að samræma réttindi einstaklinga annars vegar og skyldur ríkisins hins vegar. Mannréttindastofnanir eru þegar starfandi í mörgum ríkjum heims, víða í Evrópu og þar á meðal annars staðar á Norðurlöndunum.
Forseti. Hv. þm. Eva Dögg Davíðsdóttir fór hér ágætlega yfir vinnu nefndarinnar og það verkefni sem beið hennar með því frumvarpi sem var lagt fram hér fyrir jól gagnvart þeim atriðum sem ég hef reifað hér um hvaða skyldur eru settar á umgjörð mannréttindastofnana til þess að þær standi undir því að vera ígildi þessara hugsjóna og um tilganginn sem þær eiga að ná utan um og þá út frá þessum Parísarviðmiðum. Ég tel rétt að fara sérstaklega yfir þau atriði þar sem frumvarpið tók talsverðum breytingum frá því að það var lagt fyrst fram. Nefndin fékk í rauninni það verkefni þar sem ákveðið var að fara þá leið að réttindagæsla fatlaðs fólks myndi eiga sér stað innan Mannréttindastofnunar Íslands, sem er þá einsdæmi í heiminum — nefndinni var ákveðinn vandi á höndum að finna þá út úr því hvar stofnunin væri best sett innan stjórnkerfisins þar sem hún gæti þá annars vegar verið algerlega sjálfstæð, eins sjálfstæð og Parísarviðmiðin gera kröfu um, og t.d. ef hún væri sett undir Alþingi þá væri hún ekki með eftirlit ef hún væri með einhvers konar stjórnsýslu á sínum herðum. En þegar rýnt var ofan í lögin um réttindagæslu fatlaðs fólks kom í ljós að þar var að finna einstaka atriði sem var samkomulag um og að það gæti ekki verið neitt annað heldur en stjórnsýslan sem væri þá eftirlitslaus. Nefndin var sammála um að þegar verið væri að setja á laggirnar svo mikilvæga stofnun færi betur á því að reyna að finna betra fyrirkomulag en svo út úr málum þannig að það varð úr, eins og hv. þm. Eva Dögg Davíðsdóttir fór hér yfir, að hlutverki eða verkefni réttindagæslumanna fatlaðs fólks var í rauninni skipt í tvennt með ákveðinni einföldun þar sem eftirlitshlutverkið, sem ætti vissulega heima undir Mannréttindastofnun, myndi þá fylgja með henni en önnur verkefni yrðu færð til sýslumanns og annarra innan stjórnsýslunnar. Ég held að það hafi verið mjög farsæl breyting sem undirstriki það að það skyggir ekkert á hlutverk Mannréttindastofnunar, að það sé einhvern veginn algerlega ómengað af annarri starfsemi og hún geti styrkt sig enn frekar og verið óháð í sínu sjálfstæði og í sínum mikilvægu verkefnum.
Ég held að það sé líka rétt, forseti, að nefna að það var alveg nefnt hvort stofnun sem þessi ætti heima undir Alþingi eða annars vegar í stjórnkerfinu. Norðurlöndin hafa þar alls konar háttinn á þar sem þær eru stundum undir ráðuneyti og stundum undir þinginu og stundum tengdar umboðsmanni Alþingis o.s.frv., enda er stjórnskipun ekki alveg eins á milli Norðurlandanna þó að við séum oft í mörgu lík. Ég held það hafi verið eðlilegt að taka þá svona snúninga. Niðurstaðan er að þessi stofnun heyri undir Alþingi og ég held að það sé vel hægt að una þeirri niðurstöðu þó að það hafi líka vel verið hægt að færa önnur rök í því samhengi öllu saman. En eins og ég hef reifað hér áður þá var algjört lykilatriði til að það gengi upp að stjórnsýsluhlutverki réttindagæslumanna fatlaðs fólks yrði fundinn annar staður í stjórnsýslunni svo að sú stjórnsýsla yrði ekki eftirlitslaus eins og stofnanir undir Alþingi eru.
Þetta er þá ákveðin niðurstaða í málinu og eins og hv. þm. Eva Dögg Davíðsdóttir fór hér yfir þá er öll nefndin á þessu máli og talaði sig saman í gegnum það og komst að þessari niðurstöðu. Ég held að það fari vel á því. Hérna er undir mikilvægt mál og verður eflaust partur af okkar stjórnskipun um einhver ár til framtíðar, ef ekki alltaf. Ég hlakka bara til að fylgjast með þessari stofnun og hennar verkum og vona að þau verði farsæl með það að augnamiði að passa upp á mannréttindi í landinu, því að þau eru misjöfn og alls konar og margslungin en öll jafn mikilvæg. Ég vona að þetta verði að lögum og að stofnuninni muni farnast vel í sínum mikilvægu verkum.