Mannréttindastofnun Íslands.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mjög enda hafa hv. þingmenn Eva Dögg Davíðsdóttir, framsögumaður málsins, og Hildur Sverrisdóttir gert þessu máli góð skil hér í ræðustól. Ég vildi hins vegar koma hér örstutt upp og fagna því að Mannréttindastofnun sé að þokast nær því að verða komið á fót hér á Íslandi með lögum frá Alþingi.
Mannréttindi eru hornsteinn frelsis, friðar, þróunar og réttlætis og þau er mikilvægt að heiðra og þeim þarf að hlúa að. Mannréttindi koma nefnilega ekki af sjálfu sér heldur eru þau ákvörðun sem þarf að festa í lög, koma inn í kerfi og venja stofnanir við og jafnvel koma stofnunum á til þess að halda utan um þau og sinna. Þess vegna er mikilvægt að mannréttindi eigi sér óháðan málsvara í stjórnkerfinu. Ég fagna því þess vegna að Mannréttindastofnun eigi að eiga sér athvarf og skjól undir Alþingi. Þetta er því mikið og stórt skref sem við erum að stíga til að efla og vernda mannréttindi á Íslandi. Með þessu komumst við úr fámennum en ekki góðmennum hópi nokkurra landa í Evrópu sem ekki eiga slíka stofnun. Svo finnst mér skipta máli og vil draga það fram að þetta er eitt af atriðunum sem skipta svo miklu máli til þess að við getum lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem ég held að flest hér í þessum sal hafi tekið undir að mikilvægt sé að lögfesta. Þetta er samningur sem var fullgiltur hér á Íslandi árið 2016 og er vissulega verið að innleiða í íslensk lög, en ef hann verður lögfestur þá styrkir það enn frekar mannréttindastöðu fatlaðs fólks. Óháð innlend mannréttindastofnun er því skref í þeirri vegferð.
Stofnun sérstakrar mannréttindastofnunar gagnast ekki aðeins fötluðu fólki heldur snýr það auðvitað að mannréttindum okkar allra, sama hver við erum. Hlutverk Mannréttindastofnunar er t.d. eftirlit með framkvæmd laga og að vinna að því að mannréttindi séu virt á öllum sviðum samfélagsins, veita ráðgjöf um vernd mannréttinda, fjalla um ástand mannréttindamála í landinu og vekja athygli á hugsanlegum mannréttindabrotum og eftir atvikum koma með tillögur að úrbótum og stuðla að rannsóknum á sviði mannréttindafræðslu og hvetja til opinberrar umræðu um mannréttindi. Þangað verður hægt að leita ráðgjafar og leiðbeininga. Slíkt getur leitt til þess að stofnunin taki mál til skoðunar að eigin frumkvæði.
Herra forseti. Við undirbúningsvinnu að frumvarpi um Mannréttindastofnun Íslands, sem hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, lagði fram hér á haustdögum eða snemma í vetur, var haft víðtækt samráð við stofnanir, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila sem öll lögðu ríka áherslu á mikilvægi þess að henni yrði komið á fót. Það var einnig gerð könnun meðal almennings um stöðu mannréttinda og þar kom fram að einungis 30% svarenda töldu mannréttindaeftirliti nægjanlega vel sinnt á Íslandi og 93% í sömu könnun töldu mannréttindi gríðarlega mikilvæg til að skapa betra samfélag. Við hljótum því öll að gleðjast yfir þessum áfanga í dag og að það eigi að gera Mannréttindastofnun að veruleika.
Að lokum langar mig að segja, herra forseti, að vegna breytinga sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gerir á atriðum er snúa að réttindagæslumönnum og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór svo vel yfir í ræðu hér áðan þá mælti ég hér fyrr í dag fyrir nefndaráliti um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Þær snúa að bæði réttindagæslumönnum og persónulegum talsmönnum þar sem búið er að samlesa og tryggja að breytingar sem þar eru gerðar á frumvarpi sem upphaflega var lagt fram af hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og svo þetta frumvarp með þeim breytingum sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggur til passi saman og gangi allt saman upp í þeim lagabálki sem fjallar um lög um réttindagæslumenn fatlaðs fólks. Svona skiptir auðvitað máli í störfum okkar hér á Alþingi þegar nefndir eru að vinna með mál sem tengjast ekki beinlínis en hafa þó einhverja snertifleti í gegnum einhver lög að þá sé vel staðið að málum og hlutir lesnir saman. Mig langar að þakka nefndasviði Alþingis sérstaklega fyrir vinnuna og aðstoðina við það að tvær þingnefndir gætu látið allt passa saman og ganga upp, því að það skiptir auðvitað máli við vandaða lagagerð. Að þessu sögðu þá styð ég framgang þessa máls og vona að það komi til atkvæða hér á Alþingi sem allra fyrst.