154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:08]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Stjórnarskrá eða stefnuyfirlýsing. Í gær sat ég málþing á vegum utanríkisráðuneytisins þar sem kynnt var skýrsla starfshóps um aðgerðir gegn svokallaðri gullhúðun EES-gerða, þ.e. þegar gengið er lengra við innleiðingu Evrópusambandstilskipana en gerðar eru kröfur um. Þótt nálgun starfshópsins hafi verið óþarflega hlutdræg og einföld að mínu mati voru þar lagðir til ferlar til að stuðla að vandaðri lagasetningu og fagmennsku í framsetningu lagafrumvarpa til Alþingis, t.d. að við vinnslu lagafrumvarps komi skýrt fram hvort viðkomandi tilskipun veiti svigrúm við innleiðingu og hvernig vikið er frá lágmarkskröfum hennar. Við Píratar fögnum öllum skrefum sem tekin eru í þá átt að gera lagasetningarferlið faglegra, gagnsærra og lýðræðislegra. Brýnasta verkefnið í þeim efnum er þó að okkar mati að festa í sessi ferli sem tryggir að lög sem samþykkt eru á Alþingi Íslendinga séu í samræmi við stjórnarskrána. Það hljómar sjálfsagt, ég veit, en svo er það ekki í dag. Ekki nóg með að engin trygging sé fyrir slíku í ferlinu heldur hefur núverandi meiri hluti á Alþingi ítrekað hafnað sjálfsagðri kröfu um að slík úttekt fari fram í einstökum málum áður en samþykkt eru lög sem hafa gríðarleg áhrif á réttindi borgaranna.

Á Íslandi hefur myndast sú venja að dómstólar hafi úrskurðarvald um stjórnskipulegt gildi laga, þ.e. hvort lög samrýmist stjórnarskrá. Aðalókostur þessa fyrirkomulags er að það kemur einungis til eftir að lög hafa verið sett og þeim beitt og einnig er það háð því hvort reyni á gildi laganna fyrir dómstólum yfir höfuð.

Vinur minn frá Japan var í heimsókn á Íslandi um daginn. Hann er lögfræðingur sem hefur starfað víða um heim, í Evrópu, Bandaríkjunum og í Asíu. Þegar ég lýsti fyrir honum hvernig þessum málum er fyrir komið hér á landi sagði hann: Bíddu, en þá er þetta ekki stjórnarskrá, þá er þetta meira eins og stefnuyfirlýsing. Frumvarp Pírata (Forseti hringir.) um Lögréttu, nefnd sem kannar stjórnskipulegt gildi laga áður en þau eru samþykkt, liggur fyrir Alþingi. (Forseti hringir.) Það er einfalt mál og það er sjálfsagt mál í réttarríki.

Forseti. (Forseti hringir.) Viljum við vera með stjórnarskrá eða stefnuyfirlýsingu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)