154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:13]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég óska okkur öllum til hamingju með daginn. Í dag er 19. júní og við höldum upp á afmæli jafnréttis, að konur fengu kosningarrétt árið 1915. Þetta hefur verið rætt í störfunum og þakka ég góðar ræður. Mig langar að koma inn á það að við verðum að vera vakandi því að við sjáum, ekki bara úti um allan heim heldur líka hér á Íslandi, að það er bakslag, það er þrengt að réttindum fólks og réttindabarátta tengist alltaf, hver barátta annarri. Við getum verið að berjast fyrir réttindum kvenna en það hefur líka áhrif á réttindi okkar allra. Það hefur áhrif á réttindi hinsegin fólks og eftir því hvar við stöndum í hverjum málaflokki þá verðum við alltaf að horfa yfir allt sviðið. Ég hef af því sérstakar áhyggjur að ég upplifi að við stöndum í stað þegar kemur að konum í áhrifastöðum. Þær eru of fáar og þær verða fyrir aðkasti. Við sjáum það að orðræðan er öðruvísi og það er bæði hér í þessum þingsal sem og á samfélagsmiðlum og alls staðar í samfélaginu. Mikið var rætt um það þegar fyrrverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sat í því embætti og ítrekað var talað niður til hennar um að hún réði ekki heldur væri það fjármálaráðherra sem öllu réði. Ég get ekki litið öðruvísi á það en kvenfyrirlitningu af því að sú umræða þagnaði þegar karlar setjast í báða stóla. Ég held að við þurfum öll að vera meðvituð um það (Forseti hringir.) að það hvernig við tölum um konur í okkar samfélagi endurspeglar þau viðhorf sem komandi kynslóðir bera til kvenna.