154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Pólitíkin er merkilega skrýtin og það er rosalega erfitt að útskýra fyrir fólki sem hefur ekki verið inni í pólitíkinni hvernig hún virkar í raun og veru. Maður fær alls konar skilaboð eins og: Af hverju vinnið þið ekki bara saman? Af hverju eruð þið í þessu málþófi? Alls konar svona skiljanlegar athugasemdir þangað til maður kemur hingað inn í salinn eða er hérna í hliðarsölum eða því um líkt og áttar sig á því að það eru bara sumir sem vilja ekki vinna saman, vilja málþóf og oftar en ekki þeir sem fólk kannski sýnist að séu í því hlutverki. Eitt sem kom mér mest á óvart t.d. var hlutverk meiri hlutans í málþófi, þ.e. hvernig meiri hlutinn býr til málþóf með því einmitt að sýna ekki samvinnu, með því einfaldlega að segja: Við erum hérna með meiri hluta, við ráðum dagskrárvaldinu algjörlega óháð öllum öðrum lýðræðislegum umboðum og við ætlum bara að valta yfir allt og alla og koma okkar málum í gegn sama hvað af því að við erum með meiri hluta og það er lýðræðislegt. En lýðræðið er miklu stærra en það og það er held ég í hnotskurn ástæðan fyrir því að Píratar eru svona mikilvægir í íslenskum stjórnmálum. Lýðræðið er meira en bara einhver meiri hluti flokka sem fær ekki sjálfstætt umboð til ríkisstjórnarmyndunar í almennum kosningum, heldur flokkar sem hópa sig saman eftir almennar kosningar um að fá einhvern veginn að ráða öllu. Og það skiptir máli hvernig er verið að ráða, hvernig völdum er beitt, ekki hverjir ráða heldur hvernig. Mjög stór hluti af því er einmitt samstarf sem fólk almennt séð vill sjá. En það gerist ekki af því að það eru sumir sem vilja einfaldlega ráða sama hvað.