Störf þingsins.
Herra forseti. Það þarf auðvitað ekkert að hafa mörg orð um það hversu mikill vandræðagangur þessarar ríkisstjórnar og ríkisstjórnarflokka hefur verið, ja, allt kjörtímabilið og ekki síst höfum við séð þetta í vetur. Kannski má segja að einn angi af því hafi birst okkur þegar samgönguáætlun var slátrað núna fyrir helgi. Við erum að sjá þetta í hverju málinu á fætur öðru og á sama tíma erum við að ræða á morgun vantrauststillögu á matvælaráðherra. Ég tek eftir því að það eru margir sem setji það mál í samhengi við hvalveiðar, hvort fólk sé með eða á móti hvalveiðum. En mig langar að árétta þá skoðun mína hér í ræðustóli Alþingis að þetta mál er miklu djúpstæðara en svo. Þetta snýst að sjálfsögðu um stjórnsýslu ráðherrans. Algjörlega óháð því hvaða skoðun maður kann að hafa á tiltekinni atvinnustarfsemi þá finnst manni það eðlileg og sjálfsögð krafa í stjórnsýslunni að þau fyrirtæki sem á annað borð mega starfa hér á Íslandi búi við einhvern fyrirsjáanleika í stjórnsýslunni, algerlega óháð skoðunum manns sjálfs. En síðan verður maður auðvitað að færa þetta yfir í það að hér á Alþingi ríkir algjört meirihlutaræði, þ.e. ríkisstjórnin fer sínu fram og ríkisstjórnarflokkarnir yfirleitt án nokkurs samtals við stjórnarandstöðuna um nokkurt einasta mál. Í því samhengi getur það auðvitað ekki verið þannig að einstaka þingmenn stjórnarandstöðunnar, og nú ætla ég að tala fyrir mig, séu settir í þá stöðu að eiga að verja ráðherra ríkisstjórnar falli, ríkisstjórnar sem teygir sig ekki til stjórnarandstöðunnar í samkomulagsátt í nokkru einasta máli. Þannig ganga nefndastörf fyrir sig, þannig ganga þingstörfin hérna fyrir sig og það er í því ljósi sem menn verða auðvitað að skoða það hvernig atkvæðagreiðslan fer á morgun.
Ég sé að því er hreyft í Morgunblaðinu í dag að ein leiðin út úr þessum ógöngum fyrir matvælaráðherra gæti verið að skipta einfaldlega um ráðherrastól eins og hefur verið gert áður á líftíma þessarar ríkisstjórnar. Í því samhengi langar mig að segja: (Forseti hringir.) Vandi þessarar ríkisstjórnar er miklu djúpstæðari en svo að hann verði leystur með því einu að skipta ráðherrum milli ráðherrastóla.