154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:25]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Loksins hefur ný aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum verið kynnt almenningi til umsagnar. Það kom mér reyndar á óvart að þegar ráðherrar stóðu hér á föstudaginn og kynntu hana þá byrjuðu þau ekki á því að ræða mikilvægi þess að grípa til róttækra aðgerða til að stemma stigu við loftslagsbreytingum, hvaða áhrif það hefur á samfélagið allt, á vistkerfi heimsins, á hagsmuni Íslands að við stöndum okkur vel í þessum málum. Í staðinn voru ráðherrarnir meira að benda á atriði sem þeir töldu sig geta montað sig af. Það væru fleiri aðgerðir í þessari en þeirri síðustu, 150 aðgerðir í þessari áætlun — minntust reyndar ekki á að 66 þeirra eru bara á hugmyndastigi, eru ekkert útfærðar. Svo meira að segja gekk ráðherra svo langt í viðtali að monta sig af fjölda umsagnardaga í samráðsgáttinni vegna þess að venjulega væri bara gefinn tveggja vikna umsagnarfrestur en nú væru heilir tveir mánuðir undir þannig að almenningur hefði aldrei mátt sjá annað eins. Þar skautar hann fram hjá því að á meðan áætlunin var unnin þá ræddi ráðuneytið við atvinnulífið um ólíka geira en hunsaði náttúruverndarsamtök. Þar hefði verið hægt að fá góðar hugmyndir inn í vinnuna. Tölur sem var minna rætt um voru hins vegar að það tók ráðherrann 928 daga að uppfæra aðgerðaáætlunina. Það er helmingi meira en meðgöngutími afríkufíls. Hann talaði ekki um að það er samdráttur í framlögum til loftslagsmála öll ár fjármálaáætlunar sem við höfum til umfjöllunar og hann talaði ekki um að markmiðin, sem sagt reiknilíkönin sem áætlunin var keyrð í gegnum, áætla að hún skili 35–45% samdrætti en hærri talan gerir ráð fyrir aðgerðum sem ekki er hægt að meta. (Forseti hringir.) Það sem var hægt að meta skilar 35%, sem er jafn mikið og áætlunin 2020. (Forseti hringir.)

Við þurfum meiri metnað og við þurfum sívaxandi metnað, ekki það metnaðarleysi, stöðnun og samdrátt sem ríkisstjórnin stendur fyrir í loftslagsmálum.