154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:27]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég var hluti af íslenskri verkalýðshreyfingu þegar samþykkt var á landsþingi Alþýðusambandsins að upptaka evru og innganga í Evrópusambandið væri hið eina rétta fyrir íslenskt samfélag. Því miður var þessari ályktun stungið ofan í skúffu. Nú hafa nýir forystumenn í verkalýðshreyfingunni lýst efasemdum um íslensku krónuna, vilja skoða upptöku annars gjaldmiðils eða í það minnsta að fram fari rannsókn á kostum og göllum íslensku krónunnar samanborið við önnur og stærri gjaldmiðlasvæði.

Allt frá því að ég kom inn á íslenskan húsnæðismarkað hef ég búið við óstöðugleika. Þannig hefur það verið hjá öllum. Vegna þessa óstöðugleika var tekin upp verðtrygging bæði á lánum og launum en það leysti ekki neitt. Niðurstaðan varð sú að hætt var að verðtryggja laun en lán héldust áfram verðtryggð og gera enn. Allar tilraunir til að auka stöðugleika hafa mistekist. Vextir hafa verið kýldir niður með handafli og fólki ýmist talin trú um að taka óverðtryggð eða verðtryggð lán, allt eftir því hvernig vindar hins skoppandi íslenska örgjaldmiðils hafa blásið.

Þetta ástand er óviðunandi enda hafa hundruð fyrirtækja þegar gefist upp á krónunni og flutt sig yfir í annað og stærra myntkerfi vegna þess að þau geta það. Almenningur situr hins vegar eftir með svartapétur og getur sig hvergi hreyft.

Virðulegur forseti. Íslenskur stöðugleiki er í mínum huga ekkert annað en svikalogn. Sagan hefur kennt okkur að sá óheyrilegi kostnaður sem fylgir því að ríghalda í íslensku krónuna endar alltaf á herðum almennings. Við verðum að fara að bjóða fólki upp á aðrar og raunhæfari lausnir en innantóm loforð. (Forseti hringir.) Það gerir einn flokkur á Alþingi og sá flokkur heitir Viðreisn.