Störf þingsins.
Herra forseti. Í fréttum RÚV nú á dögunum birtist frétt þess efnis að ríkisstjórnin hygðist skoða að banna nýskráningu bensín- og dísilbíla og bifhjóla árið 2028. Þetta kemur fram í uppfærðri aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem samanstendur af einhverjum 150 aðgerðum, en í fyrra voru þær um 50 talsins. Ekki er aðeins verulegur kurr í landsbyggðarfólki vegna þessara frétta, sem von er, heldur má fullyrða að hér er enn eitt umbúðamálið frá þessari mjög svo ósamstiga ríkisstjórn. Hér er það ekki innihaldið sem skiptir máli heldur umbúðirnar og glansinn. 2028, herra forseti, 2028 — þetta er hreinlega útópískt, en kemur svo sem ekki á óvart frá VG. En ætla Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn að láta draga sig í slíka vegferð og aðför að efnahag fjölskyldna í landinu og öryggi landsbyggðarinnar? Mér er spurn, herra forseti: Hversu nærri heimilum og atvinnulífinu eru Framsóknar- og Sjálfstæðismenn tilbúnir að ganga til þess eins að halda villiköttum VG innan húss? Því að ég sé ekki annað í málinu en að það sé það sem verið er að gera. Þetta er svokölluð kattasmölun og hefur verið notuð áður í þessum þingsal. Hversu langt eruð þið tilbúnir að ganga, kæru Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn? Væri ekki nær að nýta tíma Alþingis til að létta undir með fólki og fyrirtækjum í stað þess að leggja endalaust steina í götu fólks?
Herra forseti. Þetta er að verða gott af dyggðaskreytingum hér.