154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Á þessum degi fyrir 109 árum fengu konur kosningarrétt í alþingiskosningum. En nú er staðan á Alþingi Íslendinga þannig að það hefur meira og minna verið óstarfhæft vikum saman og það eru alvarleg tíðindi. Og hvers vegna er staðan svona? Það er vegna þess að stjórnarflokkarnir geta ekki komið sér saman um hvernig eigi að afgreiða ágreiningsmálin sín á milli. Við í stjórnarandstöðunni höfum ýmislegt að athuga við einstaka stjórnarþingmál en samningar á milli stjórnar og stjórnarandstöðu, sem alla jafna fara fram yfir áætluð þinglok, komast ekki að af því að samningar innan stjórnarflokkanna eru ókláraðir og fyrir vikið er starfsáætlun þingsins öll úr lagi gengin. Þetta er algerlega óboðleg staða fyrir alla sem að þinginu koma en ekki síður fyrir almenning sem fær ekki lausn mikilvægra mála vegna ástandsins. Þingmál sem unnið hefur verið að í nefndum mánuðum saman eru tekin af dagskrá. Ég get nefnt samgönguáætlun sem dæmi. Mörg sveitarfélög hafa beðið eftir áætluninni sem sópað hefur verið út af borðinu. Nýframkvæmdir við innviði landsins eru undir, hvort sem eru jarðgöng, vegir, hafnir eða flugsamgöngur. Stjórnarþingmál eru samin í ráðuneytum, ráðherrar tala fyrir þeim við ríkisstjórnarborðið. Ef ágreiningur er í ríkisstjórn og á milli þingflokka stjórnarflokka ætti ekki að mæla fyrir málinu á Alþingi nema í undantekningartilfellum. En það er gert trekk í trekk í tíð þessarar ríkisstjórnar sem skapar endalaus vandamál.

Er það ekki nokkuð ljóst, forseti, að þegar stjórnarflokkarnir standa sjálfir í vegi fyrir því að stjórnarfrumvörp séu afgreidd á Alþingi þá sé allra best fyrir land og þjóð að segja þetta gott?