154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

Störf þingsins.

[11:36]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Góðar fréttir hafa borist frá Reykjanesi. Jarðhitaboranir sem ráðist var í og eru kostaðar af ríkissjóði hafa skilað góðum árangri og umfram væntingar. Tilefni þessara borana eru náttúruhamfarir í Grindavík og sú hætta sem er fyrir hendi að heitavatnsframleiðsla í Svartsengi geti stöðvast vegna þeirra eins og gerðist í febrúar síðastliðinn þegar hraun rann yfir hjáveitulögn Njarðvíkuræðarinnar og heitavatnslaust varð á öllum Suðurnesjum. Þessar hamfarir höfðu mikil áhrif á byggðina á Suðurnesjum sem telur rúmlega 31.000 manns. Í gær heimsótti ég bormenn ásamt umhverfisráðherra skammt frá Sandgerði á Rosmhvalanesi þar sem boruð var 1.300 metra djúp hola og er hún að skila 35 sekúndulítrum af heitu vatni. Hitastigið fer hækkandi og vonir standa til að það nái 70°C. Það er afar ánægjulegt, herra forseti, að jarðhitaboranir hafi skilað þessum niðurstöðum. Þekking á lághita á Reykjanesi hefur verið mjög takmörkuð og lítil gögn að styðjast við. Miklir möguleikar eru nú á varahitasvæði fyrir Reykjanesið sem er afar mikilvægt og gæti haldið hita á Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ til skemmri tíma skapist svipað ástand og var í febrúarmánuði. Auk möguleika á húshitun er líklegt að vatn úr þeim holum sem þegar hafa verið boraðar geti nýst í ýmsa atvinnustarfsemi á svæðinu. Ég vil nota tækifærið og þakka umhverfisráðherra og dómsmálaráðherra fyrir að bregðast skjótt við og öllum þeim sem hafa komið að þessu mikilvæga verkefni; Íslenskum orkurannsóknum, HS Orku, almannavörnum og bormönnum.

Heitt vatn, herra forseti, er ein af okkar mikilvægustu náttúruauðlindum og hitaveita er lífsgæði.