afbrigði.
Herra forseti. Hér greiðum við atkvæði um það að hleypa á dagskrá nefndarfrumvarpi um Hafnabótasjóð sem er hluti af þeim mikla vandræðagangi meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem fylgir því að hafa slátrað samgönguáætlun fyrir helgi. Þeir virðist síðan hafa áttað sig á því yfir helgina að það myndi allt keyra í strand varðandi framkvæmdir við hafnir landsins án þess að samin yrðu sérstök lög. Það eru samin sérstök lög hér á Alþingi til að stýra fram hjá verkleysi ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum, sem endurspeglast í því að umhverfis- og samgöngunefnd tók til sín gesti, tók á móti umsögnum, fjallaði um samgönguáætlun í átta mánuði í vetur. Útkoman er engin fyrir utan þetta eina litla frumvarp. Hvað ætli fólkið hringinn í kringum landið hugsi núna? Hvernig ætli þingmenn landsbyggðarinnar, sem lofuðu, ja ekki gulli og grænum skógum, (Forseti hringir.) en alla vega bundnu slitlagi, holulausum Skógarstrandarvegi, framkvæmdum við jarðgöng, (Forseti hringir.) einhverju öðru en frumvarpi um að það megi framkvæma (Forseti hringir.) í kringum hafnir landsins? (Gripið fram í.) Þetta er allt og sumt (Forseti hringir.) sem kemur út úr meiri hluta ríkisstjórnarinnar.
(Forseti (BÁ): Þingmenn eru beðnir um að virða ræðutíma og þingmenn eru líka beðnir að halda ekki ræður úr sætum sínum.)