154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

réttindi sjúklinga.

1105. mál
[12:22]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á málinu sem við höfum svo sem átt orðaskipti um áður hér á þessu þingi. Þegar við gerðum athugasemdir við þetta mál á sínum tíma þá lutu þær að því að ekki hefði verið haft fullnægjandi samráð við hagsmunasamtök notenda þjónustunnar og dró hæstv. ráðherra málið til baka á þeim tíma vegna þeirra athugasemda. Það sem ég sakna kannski í tengslum við það, þó að það hafi sannarlega verið rétt og góð viðbrögð af hálfu hæstv. ráðherra, er að ekki sjáist á málinu að það samráð hafi í raun leitt til þeirra breytinga sem nauðsynlegar eru á frumvarpinu til að það sé í samræmi við skuldbindingar okkar samkvæmt alþjóðlegum samningi um réttindi fatlaðs fólks og aðrar athugasemdir sem komu fram af hálfu hagsmunasamtaka notenda. Frumvarpið ber enn þess merki að vera samið á forsendum þjónustuveitenda.

Nú hef ég fulla trú á því að allt það fólk sem starfar með fólki sem af einhverjum ástæðum er annaðhvort ekki fært um að sjá um sig sjálft eða að gæta eigin öryggis og annars — ég efast ekki um að það fólk starfi allt af góðum hug. Hins vegar þá sýnir reynslan einfaldlega að nauðung er of mikið beitt, ekki eingöngu (Forseti hringir.) í þágu sjúklinga heldur einnig þegar viðkomandi starfsmaður (Forseti hringir.) hefur ekki eða telur sig ekki hafa eða veit ekki af öðrum úrræðum sem tiltæk eru til að leysa vandamálið. (Forseti hringir.) Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna (Forseti hringir.) ekki var gengið lengra í að takmarka beitingu nauðungar í þessu frumvarpi.