154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

réttindi sjúklinga.

1105. mál
[12:27]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt þá telur hann að í raun hafi verið gengið eins langt og hægt er við að takmarka beitingu nauðungar og það einungis einskorðað við nauðsynleg tilvik. Í frumvarpinu er hins vegar enn gert ráð fyrir því að beita nauðung í tengslum við atriði sem við lítum almennt svo á að sé einstaklingi í sjálfsvald sett að stjórna. Það sem mér finnst kannski mest áberandi er varðandi meðferð, enn er heimilt að þvinga meðferð. Þá eru ansi óljós eða víðtæk hugtök notuð í frumvarpinu, t.d. stendur, með leyfi forseta:

„Undir nauðung falla ekki öryggisráðstafanir sem beitt er á hjúkrunar- eða dvalarheimilum og í sérstökum hjúkrunarrýmum sjúkrahúsa og er ætlað að tryggja öryggi og vellíðan sjúklings.“

Eins stendur:

„Til að tryggja öryggi og reisn sjúklings,“ — og þar fram eftir götunum — „uppfylla lífsnauðsynlegar þarfir sjúklings“ — líkt og hæstv. ráðherra nefndi — „svo sem varðandi næringu og heilsu“. — Hversu langt nær það? — „í meðferðartilgangi“. Nú hefur ákall Geðhjálpar og annarra samtaka notenda t.d. verið á þá leið að nauðung sé ekki beitt gegn einstaklingi nema í neyðartilvikum þar sem hætta á tjóni á lífi eða líkömum eða eignatjóni er yfirvofandi. Og má svo sem halda því fram að nú þegar séu til heimildir til neyðarréttar þegar að því kemur.

Mig langar því að beina þessari spurningu til hæstv. ráðherra: Eru sjónarmið um að ganga lengra en það inn á sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins (Forseti hringir.) ekki nauðung sem er í rauninni beitt í þágu þjónustuveitanda fremur en notanda?