réttindi sjúklinga.
Hæstv. forseti. Ég vil ítreka þakkir til hv. þingmanns. Ég er svona að reyna að halda utan um þetta. Seinni spurningin snýr kannski að þessu stóra samhengi sem hv. þingmaður kom hér að í athugasemdum í fyrra andsvari. Þetta var rauður þráður í gegnum allt samtalið, allt samráðið, þ.e. nauðungin og í hvaða tilvikum henni er beitt og hvernig við getum náð utan um þetta um leið og við uppfyllum lífsnauðsynlega þarfir sjúklings og öryggi. Markmiðið hér er að setja skýrar reglur með tilliti til einstaklingsbundins mats. Ég held að það skipti mjög miklu máli að hvert tilvik sé skoðað fyrir sig. Það þarf að taka mið af aðstæðum, verklagi, samræmdri skráningu, tilkynningarskyldu. Ég held t.d. að nefndin muni með tíð og tíma hjálpa okkur að ná betur utan um þetta, hvaða tilvik er um að ræða.
Af því að hv. þingmaður kemur inn á hjúkrunar- og dvalarheimili, sem var nú tekið inn í málið, og að beita öryggisráðstöfunum, sem mögulega flyst þá yfir í það að vera einhvers konar leið til að beita nauðung í einhverjum víðtækari tilvikum eða ráðstöfunum — slíkar ráðstafanir geta falið í sér nauðung og er þá stofnunum heimilt að meta það í hverju tilviki fyrir sig. Svona öryggisráðstafanir geta verið ýmiss konar: Fallvarnir úr rúmi, fór ég yfir hér áðan, þar sem fall getur verið mjög hátt, einstaklingurinn getur hlotið skaða af. Það þarf að fara yfir alls konar aðstæður og öryggisatriði í þessu en þetta er ekki alveg einfalt. Hér eru líka tekin inn ný hugtök eins og líkamleg leiðsögn úr dönsku lögunum og fjölmargt sem þarf að taka mið af.
Ég treysti mér því miður ekki til að vera með einhlítt svar í þessu tilfelli. (Forseti hringir.) Þetta er flókið. En ég vil ítreka mikilvægi þess og það er æskilegt að stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir, (Forseti hringir.) fagfólk, notendur og aðstandendur starfi áfram saman að því markmiði að draga úr beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum (Forseti hringir.) út frá þessari meginreglu.