réttindi sjúklinga.
Forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga sem ætlað er að lögfesta og skýra heimildir til beitingar nauðungar í heilbrigðisþjónustu. Þetta mál hefur verið flutt áður hér á þessu þingi en var dregið til baka af hálfu hæstv. ráðherra í kjölfar athugasemda um að ekki hafi verið haft nægilegt samráð við hagsmunasamtök og réttindasamtök notenda. Það veldur því nokkrum vonbrigðum, úr því að málið var dregið til baka og bætt úr því samráði með þeim hætti að viðkomandi réttindasamtökum var veitt tiltekin áheyrn, að þess eru hins vegar ekki mikil merki á málinu sem slíku að hugarfarsbreytingin og viðhorfsbreytingin sem þarf að verða hafi komið til, að nægilega hafi verið hlustað á téð réttindasamtök.
Hæstv. ráðherra nefndi í andsvari sínu fyrr í dag að við gerð frumvarpsins og í samráði hafi vitanlega komið fram ólík sjónarmið og ég held við séum öll meðvituð um það. Það sem frumvarpið ber hins vegar merki um er að það séu ekki sjónarmið einstaklinga með sjálfsákvörðunarrétt, notenda þjónustunnar, sem hafi orðið ofan á heldur hafi sjónarmið þjónustunnar og þjónustuveitenda í of mörgum tilvikum orðið ofan á. Í raun ættu sjónarmið notenda alltaf að ráða för. Þau virðast svolítið hafa verið höfð til hliðsjónar við gerð þessa frumvarps en frumvarpið ekki samið út frá þeirra sjónarmiðum.
Hæstv. ráðherra nefndi hér að tilefni þessa frumvarps séu athugasemdir sem umboðsmaður Alþingis gerði í kjölfar svokallaðs OPCAT-eftirlits sem umboðsmanni Alþingis hefur verið falið að sinna frá árinu 2018. Það er sérstakt eftirlit með aðstæðum fólks sem er frelsissvipt. Útkoma þess eftirlits, úttekta sem umboðsmaður Alþingis hefur farið í, hefur verið sú að nauðung sé m.a. beitt á geðheilbrigðisdeildum á Íslandi án þess að eiga sér lagastoð. Því miður urðu athugasemdir umboðsmanns Alþingis ekki til þess að ólögmæt beiting nauðungar hafi verið hætt eða hún stöðvuð heldur var farið af stað með vinnu í að skjóta lagastoð undir beitingu nauðungar.
Ég hef svo sem nefnt oft í þessari pontu tillögur þings Evrópuráðsins um aðferðir sem aðildarríki geta beitt til að binda enda á beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu. Raunar er þar sérstaklega átt við geðheilbrigðisþjónustu þar sem beiting nauðungar er sérstakt vandamál. Beiting nauðungar er líka sérstakt og alvarlegt vandamál í þjónustu við eldra fólk á Íslandi. Því miður hefur ekki farið fram jafn ítarleg úttekt á því og á aðstæðum frelsissviptra á geðdeildum vegna þess að það er ekki heimild til að frelsissvipta fólk vegna öldrunar, þannig að fólk er frelsissvipt án þess að það teljist frelsissvipt í rauninni í lagalegum skilningi, sem sagt án þess að það sé opinbert að það sé frelsissvipt. Fólk er vistað á deildum og herbergjum þar sem það kemst ekki út, ferðir þess eru takmarkaðar, það eru notaðir fjötrar og annað slíkt án þess að það komi í rauninni neins staðar fram eða sé uppi á borðum.
Ég vil ítreka það sem ég sagði hérna áðan, að ég trúi því einlæglega að allt það fólk sem starfar með fólki sem á við geðræn vandamál að stríða og öldruðu fólki og í heilbrigðisgeiranum á Íslandi yfir höfuð geri það af heilum hug, geri það af metnaði og góðmennsku. Það sem ég held hins vegar að sé kerfisbundið vandamál — ég segi kerfisbundið vandamál vegna þess að ég held að það snúist alls ekkert um einhverja einstaklinga í heilbrigðisþjónustunni, það er munurinn á því að hægt sé að sýna góðmennsku og aðstoða og hjálpa fólki og að virða sjálfsákvörðunarrétt fólks.
Annað sem er viðvarandi vandamál, kerfisbundið vandamál, er að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu fær ekki fullnægjandi þjálfun og leiðbeiningar í því hvað það þýðir að virða sjálfsákvörðunarrétt fólks vegna þess að það þýðir heldur ekki að láta fólk óafskipt. Að virða sjálfsákvörðunarrétt fólks þýðir að ef einstaklingur á í vandræðum með að taka ákvörðun fyrir sjálfan sig þá fái hann aðstoð við að taka þá ákvörðun en ekki að tekin sé ákvörðun af hálfu einhvers annars fyrir hönd viðkomandi.
Í þessari úttekt Evrópuráðsins, sem varð til þess að leiðbeiningarnar voru gefnar út, kom m.a. fram að í kjölfar sambærilegra reglusetningar og við erum að fara í hér, þar sem lagastoð er skotið undir beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu — og sannarlega er það fagnaðarefni að það eigi að skýra reglurnar sem um það gilda vegna þess að ástandið eins og það er í dag er auðvitað með öllu óbærilegt, þar sem nauðung er beitt ólöglega og án þess að fyrir hendi séu nein viðmið um takmörk þess. Þessi úttekt Evrópuráðsins sýndi að í kjölfar lagasetningar af þessu tagi hefur beiting nauðungar aukist. Hún eykst við lagasetningu af þessu tagi.
Hæstv. ráðherra talar um og ítrekar í sínu máli, og er svo sem ítrekað í frumvarpinu, að meginreglan sé bann við beitingu nauðungar. Hins vegar eru undantekningarnar í frumvarpinu bæði svo margar og víðtækar og þess eðlis að í rauninni er hvorki hægt að halda því fram að beiting nauðungar sé bönnuð né að með fullnægjandi hætti séu settar skorður við beitingu nauðungar þegar aðrar leiðir eru færar og þá hugsum við einmitt: Þegar aðrar leiðir eru færar til hvers? Þarna finnst mér oft vanta endann á setninguna í umræðunni vegna þess að það á að vera einstaklingi algerlega í sjálfsvald sett hvort hann þiggi meðferð við sínum kvillum eða ekki. Á meðan einstaklingur er ekki metinn bráðhættulegur sjálfum sér eða öðrum þá á einstaklingur að stjórna því hvort hann fái læknismeðferð eða ekki. Þannig er ágreiningur í umræðunni sem þó er ekki nógu oft orðaður að mínu mati um það til hvers nauðung er beitt þegar aðrar leiðir duga ekki til — duga ekki til hvers? Það vantar að klára þá setningu.
Vitanlega þarf bæði starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og í rauninni við öll að hafa og vera meðvituð um þau úrræði sem eru í okkar samfélagi og okkar lagaumhverfi til að bregðast við neyðarástandi og neyð þegar líf fólks eða eignir eða annað er í hættu. En þetta frumvarp gengur svo miklu lengra í að takmarka frelsi og sjálfsákvörðunarrétt sjúklinga að ég hef áhyggjur af því að þar hafi, eins og ég sagði áðan, sjónarmið þjónustuveitenda ráðið of mikið för. Það er nefnilega ekki einfalt mál að breyta því kerfi sem við búum við. Það er ekki einfalt mál og ég mun aldrei halda því fram að það sé eitthvað sem gerist á einni nóttu. Hins vegar er ekki að sjá að það sé vilji til þess að ráðast í þær aðgerðir sem þarf til þess að binda enda á beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu vegna þess að til að gera það þá þurfum við að stíga mörg skref. Ef við horfum bara á aðstæður heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir fólki með geðsjúkdóma þá eru þær aðstæður með öllu illa til þess fallnar að gera starfsfólkinu kleift að vinna starfið sitt og vinna að lækningu, vinna að bættri líðan og bættu heilsuástandi sjúklinga án þess einfaldlega að beita lyfjagjöf, vegna þess að við vitum að það er auðvitað margt annað sem skiptir máli og jafnvel meira máli þegar að þeim málum kemur, eins og varðar allt okkar heilbrigði; aðgangur að náttúrunni, aðgangur að rými, möguleikar á því að vera ein með sjálfum okkur, sjálfsákvörðunarréttur. Sjálfsákvörðunarrétturinn sem slíkur er gríðarlega mikilvægt tæki í bata, ekki síst fyrir fólk með geðsjúkdóma þar sem það að beita fólk nauðung getur orðið til þess hreinlega að valda meiri skaða en lækningu sem er verið að neyða fólk til að þiggja gegn sínum vilja.
Ég vildi aðeins víkja orðum að sérfræðiteyminu. Þó að ég hafi svo sem kannski bæði núna og áður þegar ég hef rætt þetta mál svolítið haft aðstæður geðsjúkra í huga, vegna þess að það er kannski þar sem potturinn er brotinn samkvæmt mjög skýrum skýrslum umboðsmanns Alþingis, þá langar mig að beina aðeins sjónum að hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðs fólks þar sem nauðung er beitt með miklum hætti. Mig langaði að vekja athygli á því t.d. að í núgildandi lögum þá ber að vekja athygli svokallaðs sérfræðiteymis um beitingu nauðungar á því þegar nauðung er beitt. Nú hef ég þetta eftir öðrum aðilum og hef svo sem ekki farið í þá upplýsingaöflun sjálf með beinum hætti en mér skilst af þeim sem til þekkja að sérfræðiteymi um beitingu nauðungar hafi aldrei fengið tilkynningu eða beiðni um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar þegar kemur að meðferð aldraðs fólks. Við vitum hins vegar að það er mjög víðtæk beiting nauðungar á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunar- og dvalarheimilum. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál.
Það sem gerir það ekki síður alvarlegt er að á Íslandi er ekki embætti á borð við umboðsmann sjúklinga sem er nokkuð sem við Píratar höfum lagt til og okkar tillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi nú þegar. Því miður hefur ekki verið vilji hjá meiri hlutanum hér á þingi til að fylgja einu sinni lögum um þingsköp Alþingis og taka það mál til umræðu í velferðarnefnd þingsins þrátt fyrir ítrekaða ósk mína sem nefndarmanns í nefndinni og framsögumanns málsins. Þrátt fyrir ítrekaða beiðni og þrátt fyrir að þingskapalög, lög sem Alþingi hefur sett um sín eigin störf, kveði á um að formanni nefndar sé skylt að setja á dagskrá mál sem framsögumaður óskar eftir, án tafar í rauninni og rökstyðja það ef það er ekki gert, hefur núna mánuðum saman mál okkar, tillaga okkar um að sett verði á fót embætti umboðsmanns sjúklinga, ekki verið tekið á dagskrá. Sú beiðni hefur ítrekað verið hunsuð með öllu af hálfu hv. formanns velferðarnefndar.
Það sem þetta gerir að verkum er að fólk sem er ekki í stöðu til þess að bera hönd fyrir höfuð sér, sem er ástæðan fyrir því að það er beitt nauðung, hefur jafnvel ekki tök á því að sækja rétt sinn eða verja rétt sinn. Á Landspítalanum starfar talsmaður sjúklinga sem hægt er að leita til, sem sjúklingar geta leitað til. Það er hins vegar ekki hlutverk þess einstaklings að hafa sjálfstætt eftirlit með aðstæðum og störfum innan Landspítalans eftir því sem ég best veit og því er í rauninni ekkert virkt eftirlit, enginn virkur málsvari sjúklinga sem ekki eru í aðstöðu til þess að verja réttindi sín sjálfir.
Nú er ræðutíma mínum lokið þó að ég gæti talað um þetta mál endalaust. Ég vildi koma þessu á framfæri hér við 1. umræðu en svo munum við auðvitað eiga dýpra samtal um þetta mál inni í velferðarnefnd og í 2. umræðu hér á þinginu.