breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegi forseti. Það er löng umræða og mikil saga á bak við það hvernig Alþingi ákveður að breyta réttindum í almannatryggingakerfinu frá einum tíma til þess næsta. Þar er eitt grundvallaratriðið að bætur almannatrygginga, hvort sem er í örorku- eða í ellilífeyri, eru ekki í eðli sínu launagreiðslur en við erum hér að fást við það hvernig við ætlum að tryggja nokkur markmið í launasetningu æðstu embættismanna ríkisins. Það eru nokkur markmið sem við höfum að jafnaði verið sammála um. Við viljum ekki vera leiðandi en við viljum að launin endurspegli þá ábyrgð sem viðkomandi embættismenn axla. Við viljum að launin séu sambærileg við þá sem gegna einhverri viðlíka ábyrgð í samfélaginu. Þetta er flókið úrlausnarefni út af fyrir sig en við erum með langan praxís í þessu. (Forseti hringir.) Það er ekki tryggt að við náum öllum þessum markmiðum ef við myndum einfaldlega nota viðmiðið sem hefur verið notað fyrir almannatryggingar.