breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Mér finnst þetta frekar skrýtið því að andlagið í bæði hækkun almannatrygginga og hækkun kjörinna fulltrúa er launaþróun. Það er launaþróun á almennum markaði sem á að vera viðmiðið í almannatryggingum ef hún er hærri en verðbólguþróun, annars er það verðbólguþróun, en fyrir kjörna fulltrúa er það launaþróun opinberra starfsmanna. Það er eini munurinn á launaþróun annars vegar á almennum markaði og hins vegar á opinberum markaði, en hvort tveggja er launaþróun. Því velti ég fyrir mér: Hvað er flókið við í rauninni að nota sama viðmið, sömu aðferð og er notuð fyrir almannatryggingar? Ef ekki, af hverju er þá ekki verið að nota sömu aðferðafræði í almannatryggingum og við notum gagnvart kjörnum fulltrúum? Það á að miða við launaþróun í báðum tilfellum, einhverra hluta vegna annars vegar á opinberum og hins vegar almennum. Það er ákveðið smáatriði sem þyrfti kannski að laga, en af hverju er þetta vandamál?