breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það með hæstv. forsætisráðherra að þetta mál er ekki einfalt í eðli sínu. Þetta er flókið umsagnarefni og í gegnum tíðina, þau ár sem ég hef verið á þingi, síðan fyrir síðustu aldamót, hefur þetta komið nokkuð reglulega upp. Ég er ekki að mæla gegn þessu frumvarpi. Ég tel að þetta sé viðleitni hæstv. forsætisráðherra til að reyna að koma skikki á hlutina í annars mjög erfiðu efnahagsástandi sem er miklu frekar hægt að gagnrýna hann fyrir heldur en nákvæmlega þetta.
Hitt er síðan að það sem mínar vangaveltur lúta að eru þeir hópar sem hafa sérstaklega stjórnarskrárvarin réttindi, dómstólar, dómendur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að með þessu sé verið að ganga frá málum á þann veg að þau haldi gagnvart dómstólum og dómendum ef til þess kemur.