154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[15:31]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það ber að vara sig á því að fullyrða hvernig dómar myndu falla um þau mál ef á verður látið reyna. Það sem við höfum einfaldlega gert er að við höfum borið þessi álitamál undir sérfræðinga okkar í Stjórnarráðinu og þau ráð sem við fáum þaðan eru síðan samantekin í greinargerð með þessu frumvarpi. Við teljum að færð séu fyrir því góð rök að sú aðferð að láta eitt yfir alla ganga geti staðist. Við getum ekki fullyrt fyrir fram, ef á verður látið reyna, hvernig um það yrði að lokum dæmt en við erum í góðri trú á grundvelli bestu ráðgjafar sem er fáanleg í Stjórnarráðinu, að leggja þetta til með þessum hætti, með þessum rökstuðningi.