154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[15:32]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég tel, og ætla bara rétt að vona það, að við öll hér inni séum í góðri trú. Þess vegna erum við að reyna að vanda okkur, af því að þetta er flókið, þetta er snúið og þetta snertir mikilvæg réttindi og viðkvæm. Ég vil einfaldlega beina því til hæstv. forsætisráðherra, af því að við höfum ekki langan tíma, að við þurfum að vanda okkur til að við fáum þetta ekki beint aftur í hausinn. Ég er ekki að kenna ríkisstjórninni einni um, við berum öll ábyrgð á því sem héðan kemur hvað þessu máli viðkemur. Við erum ekki búin að fá umsögn, ekki nema hæstv. forsætisráðherra hafi fengið umsögn frá dómstólaráði og ég held að það væri gott ef hann myndi upplýsa okkur um það. En annars tel ég mikilvægt að rýna vel hvað umsagnaraðilar munu segja um þetta mál.

Um leið og ég segi það — og ég bið hæstv. forseta að setja mig á mælendaskrá — þá er mikilvægt að koma í veg fyrir það sem hæstv. forsætisráðherra benti hér réttilega á, að við séum alltaf að hringla í þessu reglulega. Það er enginn bragur á því að við, (Forseti hringir.) kjörnir fulltrúar almennings, séum alltaf að vasast í okkar (Forseti hringir.) eigin launakjörum. Það er enginn bragur á því, við þurfum að hafa þetta skýrara, gegnsærra og einfaldara.