breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Málið fór ekki í samráðsgátt. Það hefur verið samið á tiltölulega skömmum tíma. Við höfum haft stutt samráð við aðra þingflokka hér í þinginu, bara til að veita upplýsingar. Þar voru ekki lagðar fyrir neinar ákveðnar tillögur. Í framhaldinu var ákveðið að leggja þetta frumvarp fyrir þingið. Það er ekki bara óheppilegt að vera að fjalla reglulega um okkar eigin laun heldur líka að vera að grípa inn í launaþróun allra annarra æðstu embættismanna. Það er mjög óheppilegt. Þar koma bæði stjórnarskrárleg álitaefni til en í öllu samhengi væri langbest að hafa annan hátt á þessum málum en að þurfa að hafa reglulega þinglega aðkomu að því. En undirliggjandi er auðvitað það að hér hafa laun verið að hækka gríðarlega mikið, (Forseti hringir.) langt umfram það sem er að gerast í nágrannalöndunum, og það getur ekki verið þannig til lengri tíma.