breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna á þessu máli og er að velta við svipuðum steinum og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerði hér áðan. Það snýr að launum dómara. Við höfum, eða þetta þing — ég greiddi nú ekki atkvæði með þeim hluta en meiri hluti þessa þings að tillögu ríkisstjórnarinnar hefur áður gripið inn í laun dómara og það er vissulega svo að þá fór það ekki fyrir dóm. En í ljósi þess að þetta eru sannarlega áunnin réttindi, þ.e. að þessi launahækkun sem ætti að koma til framkvæmda 1. júlí eru áunnin réttindi dómara og annarra, lögreglustjóra, saksóknara, seðlabankastjóra og fleiri, telur hæstv. ráðherra ekki augljósa og frekar verulega hættu á því að þetta mál rati fyrir dómstóla?