breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegi forseti. Ég ætla engu að spá fyrir um það, það getur alveg gerst. Ég óttast það í sjálfu sér ekki. Það er bara hluti af því stjórnkerfi sem við höfum byggt upp með þrískiptingunni að það getur alveg gerst. Við þurfum að geta gert ráð fyrir því og það væri verri stjórnskipan á Íslandi ef við gætum komið í veg fyrir að hægt væri að láta reyna á ákvarðanir héðan frá þinginu. Það myndi ég aldrei vilja sjá í framkvæmd. En aðalatriðið hér er í raun og veru: Eru aðstæðurnar, ástæðurnar fyrir því að koma með þetta frumvarp nægjanlega sterkar og þungar til þess að réttlæta þá breytingu sem við erum að mæla fyrir? Þar koma til skoðunar matskennd atriði sem þingið verður að axla ábyrgð á að meta. Hversu mikilvægt er það að endurheimta efnahagslegan stöðugleika í því vaxtastigi sem við erum með í dag? (Forseti hringir.) Hversu slæmt yrði það að 8% hækkunin kæmi til framkvæmda ef horft er til friðar á vinnumarkaði o.s.frv.? Afturvirknin er hluti af þessu heildstæða mati.