154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[15:37]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, en afturvirknin er bara mjög erfið í stjórnarskrárlegu tilliti. Að taka afturvirkt réttindi, hvað þá af dómurum, er eitthvað sem ég á mjög erfitt með að sjá að standist. Ég er að sjálfsögðu ekki að leggja til að það verði á einhvern hátt hægt að meina dómurum að leita réttar síns. Það sem ég er hins vegar að vísa til er að auðvitað hafa dómarar áður farið fyrir dóm og fengið niðurstöðu Hæstaréttar um að krafa um endurgreiðslu þeim á hendur hafi ekki staðist stjórnarskrá og því ætti að endurgreiða endurgreiðsluna. Þetta kostaði skildinginn, ekki bara dráttarvextirnir við allar þessar endurgreiðslur heldur þarf allur héraðsdómur að víkja við svona málflutning og allur Hæstiréttur þarf að víkja. Við vitum að það liggur nokkurn veginn fyrir hver niðurstaðan er. Hver heilvita lögmenntaður maður ætti að geta séð það að við erum hér að leggja upp í ansi kostnaðarsama ferð. Það er hins vegar ekki þar með sagt að ég sé á móti því að við tökum á okkur það ábyrgðarfulla hlutverk að líta til stöðunnar á vinnumarkaði, (Forseti hringir.) enda held ég að róin snúist aðallega um launin okkar hér inni.