breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að segja að ég geti tekið undir með þessu síðastnefnda, t.d. að það yrði mikil ánægja með að seðlabankastjóri fengi 8% launahækkun á sama tíma og vextir eru jafn háir og á við í dag. (Gripið fram í.) Ég veit ekki hvort það er rétt metið hjá hv. þingmanni að það myndi njóta almenns stuðnings og mikillar velvildar. Ekki að það sé málefnaleg ástæða til að gagnrýna það, ég er bara að tala um það sem almenn sátt gæti tekist um og vil þá taka fram að ég er með engu móti að varpa skugga á störf Seðlabankans með þessum orðum.
Það kostar einfaldlega að halda úti réttarríkinu. Stundum kostar að láta reyna á hluti. Í endurgreiðslumálinu fannst mér þingið, ríkisstjórnin skulum við segja, vera að gera rétt með að láta reyna á það hvort þeir sem hefðu fengið ofgreitt ættu að endurgreiða. Svo var tekist á um það hvort þetta hafi í reynd verið ofgreiðsla, hvort menn hafi verið í góðri trú og allt það, með réttmætar væntingar um að halda greiðslunni, og það fékkst einhver niðurstaða. Ég var ekkert sammála henni en ég virði hana.