154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[15:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna og andsvörin sem hér hafa verið veitt og svörin. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í það að Alþingi Íslendinga er hér að ákveða laun alþingismanna. Við erum hér að taka ákvörðun um laun okkar sjálfra. Það er hlutur sem ég botna hreinlega ekkert í. Mér finnst engin ásýnd á því úti í samfélaginu að senda þau skilaboð að við alþingismenn stöndum að launahækkun fyrir okkur sjálf. Sjá, það á að hækka launin um 66.000 kr. á mánuði. Ég verð að segja að 66.000 kr. eru háar fjárhæðir fyrir ákveðna hópa í samfélaginu, öryrkja, aldraða, tekjulægstu hópana í samfélaginu, fátækt fólk. Og þá kemur í ljós: Nei, heyrðu, þingmenn eru að ákveða þetta sjálfir. Hvernig stendur á því að við búum við það kerfi að við séum sjálf að ákveða okkar eigin laun? Hvernig stendur á því að það hafa ekki komið fram alvörumódel svo að við þurfum ekki að vera að hugsa um þessi mál og taka ákvörðun um eigin launahækkanir?