breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Ég hef tekið það fram áður að það er mjög óheppilegt að kjörnir fulltrúar þurfi reglulega að fjalla um eigin launakjör. Hv. þingmaður bendir á að 66.000 kr. séu umtalsverð launahækkun og ég ætla ekki að gera lítið úr því. En hún er líka umtalsvert lægri en það sem ella myndi gerast ef þessi tillaga kæmi ekki fram, sem væri kannski rúmlega 200.000 kr. launahækkun. Það sem við ættum kannski frekar að ræða er hvort 66.000 kr. er skárra en 200.000 kr. En svo getum við farið í kapphlaup um það hversu lág laun kjörnir fulltrúar ættu að vera með. Og það er kannski mesta hættan, ef við erum reglulega að ræða um þessa hluti, að við förum í einhvers konar kapphlaup niður á botninn og förum í stanslaus yfirboð um það hversu lág launin ættu að vera. Ég vona bara að slíkt kapphlaup fari ekki af stað hér.