breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Ég er ekki í neinu kapphlaupi við hæstv. forsætisráðherra. Ég spyr bara: Hvernig stendur á því að stjórnvöld hafi ekki komið fram með kerfi og módel sem leiðir til þess að Alþingi Íslendinga sé ekki að ákveða laun þingmanna? Nú þurfum við að fara að samþykkja eigin launahækkun og þetta er eini þjóðfélagshópurinn á Íslandi sem er að ákveða eigin laun. Ég veit ekki um neitt annað ríki sem er með þannig kerfi að einhver hópur eða starfsstétt, þetta eru 63 sálir sem eru hérna, hv. þingmenn, sé að ákveða eigin laun. Það er málið. Og hvernig í ósköpunum stendur á því að ekki er búið að koma upp kerfi þar sem séð er til þess að við séum ekki að gera það? Það er það sem er kjarni málsins. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra skipaði líka starfshóp í nóvember 2023. Fékk sá starfshópur ekki skilaboð um að hann ætti að koma með kerfi sem leiddi til þess að þingmenn væru ekki að ákveða eigin laun? Við verðum að horfa á þetta í samhengi, hvernig ásýnd það er að við séum að ákveða eigin laun. Fyrir ákveðna hópa er þetta há fjárhæð, það verður að horfast í augu við það. Ég get ekki séð (Forseti hringir.) annað en að þetta muni jafnvel leiða til dómsmála.
Spurningin er þessi: Hvenær kemur módel sem leiðir til þess að við þurfum ekki að taka þessar ákvarðanir?