breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Ég vék að því í minni framsögu að í smíðum er nýtt frumvarp um þetta efni sem við ræðum vonandi í haust. Ég vék sömuleiðis að því að við höfum oft gripið inn í þessa hluti. Við tókumst á um tilvist kjararáðs á sínum tíma og komum með lögin frá 2019 til þess að gera atlögu að því að koma upp betra fyrirkomulagi. Sjálfvirknin í þeirri tillögu sem varð að lögum átti að koma í veg fyrir að við þyrftum að ræða þessa hluti reglulega, þ.e. það var skrifað inn í lögin hvenær og á hvaða grundvelli laun þjóðkjörinna fulltrúa og annarra sem heyrðu undir lögin ættu að taka breytingum. Það átti að gerast 1. júlí með ákveðnum viðmiðum fyrir næstliðið ár. Þetta átti að koma í veg fyrir að við værum að ræða þetta reglulega. Það er eina svarið sem ég hef við þessu.