breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Til að taka af allan vafa hvað það varðar þá gæti það ekki virkað þannig að vinnandi fólk sem stundar átta klukkutíma vinnu á dag eða meira, eins og þingmenn — eða minna eins og þingmenn eða hvernig sem það er — það gengur ekki að þingmenn eða venjulegt fólk fái t.d. 5% launahækkanir en lífeyristryggingar hækki bara um 2,5%. Það virkar ekki. Það verður að vera þannig að báðir aðilar, allir aðilar hækki um sömu eða svipaða prósentu til þess að búa ekki til þessa gjá. Þannig að svarið við því er sem sagt nei.
Það sem ég er hins vegar að reyna að benda á er af hverju við erum með mismunandi viðmið fyrir þessa tvo hópa, viðmið sem gera það að verkum að fólk sem er á almannatryggingum, þrátt fyrir að hægt sé að segja að það sé ekki vinnandi og þess háttar, hækki á annan hátt en þingmenn sem eru misvinnandi og ýmislegt svoleiðis. Það skiptir ekki máli efnahagslega séð ef við ætlum ekki einhvern veginn að búa til launagat þannig að fólk sem er á almannatryggingum endi eftir einhver ár með miklu lægri framfærslu heldur en fræðilega væri hægt að draga fram lífið á. Þá hlýtur svarið að vera að þau þurfi að hækka hlutfallslega alla vega jafn mikið og fólk sem er á vinnumarkaði, enda er það í almannatryggingalögunum að fylgja eigi almennri launaþróun. Það er þumalputtareglan. Við eigum að gera það líka en erum einhvern veginn með aðra reiknireglu sem skilar hærri prósentu fyrir æðstu ráðamenn og þingmenn heldur en reiknireglan í almannatryggingum. Það er skrýtið.