breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Við þurfum með einhverjum hætti að tala okkur niður á eða finna út úr því með hvaða hætti við ætlum að hækka laun þingmanna. Kjararáð klúðraði þessu gjörsamlega 2016 þegar allt varð vitlaust í samfélaginu. Það var nýbúið að semja um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og þá kom þessi úrskurður kjararáðs sem setti allt á hliðina. Svo heyrði maður jú að þetta hefði verið uppsafnað af því að ekki var búið að hækka laun þingmanna í einhvern tiltekinn tíma, en engu að síður var upphæðin veruleg. Vissulega þurfum við að gera eitthvað í þessari kjaragliðnun en hún hefur orðið til vegna þess að í tilfærslukerfunum er alltaf verið að miða við einhverja prósentu, finna eitthvert meðaltal sem ég kann ekki, en á hinum almenna vinnumarkaði hefur það viðgengist í áraraðir að gera meira fyrir þá sem lægstu launin hafa með krónutöluhækkun, með því að bæta fleiri krónum inni í taxtana sem hefur þá þýtt hærri prósentu fyrir þann hóp heldur en hin almenna hækkun sem hinir taka, sem tryggir þá laun sem eru umfram launataxta. Þannig hefur þetta verið í 20 ár, alltaf bætt inn í launatöflurnar fleiri krónum eða á milli þrepa til að styrkja þá sem taka lægstu launin og svo er einhver almenn hækkun. Þetta þekki ég úr mínu fyrra starfi og þannig hefur þetta verið lengi. Þetta var ekkert að gerast 2019 í þeim kjarasamningum, lífskjarasamningunum svokölluðu. Þetta er búið að viðgangast lengi. En þeir sem taka bætur úr tilfærslukerfinu hafa ekki notið þess þegar krónutölu hefur verið bætt inn í taxtana. Við þurfum einhvern veginn þegar við komumst í meiri hluta að breyta þessu.