breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegi forseti. Örstutt um þetta snúna og að einhverju leyti flókna viðfangsefni sem við virðumst því miður reglulega standa frammi fyrir hér í þingsal. Ég tel þetta frumvarp sem er sett fram af hálfu hæstv. forsætisráðherra vera eðlilega viðleitni og tilraun til þess að reyna að taka á þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir, m.a. að reyna að ná efnahagslegum stöðugleika. Ef það er einhver ábyrgð sem við getum sett á herðar ríkisstjórnarinnar þá er frumvarpið einmitt til komið til að passa upp á að við förum ekki að rugga bátnum enn frekar og er nú nóg fyrir. Þar hefur ríkisstjórninni náttúrlega mistekist. Við áttum okkur á því með 9,25% stýrivexti, viðvarandi verðbólgu yfir 9% mjög lengi og núna nokkuð yfir 6%, í lengri tíma og hærri en í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Við sjáum líka, og það er kannski ein sterkasta myndin af slakri efnahagsstjórn, að hallinn sem átti upphaflega að vera til 2027 lengdist á fjárlagahliðinni til 2028 og nú er hann kominn yfir á 2029. Því verður meira en 11 ára samfelldur hallarekstur á ríkissjóði á vakt Sjálfstæðisflokksins. Auðvitað er það stóra myndin og þetta er að hluta til bara brotabrot af því hvernig við getum fengist við það að reyna að ná stöðugleika. Eðlilega beinast spjótin þá að kjörnum fulltrúum og æðstu embættismönnum og auðvelt að skjóta á það, en við höfum í rauninni ekki annað í höndunum en að þurfa því miður að höndla með þetta sjálf. Mér finnst það miður að við þurfum á endanum alltaf að koma hingað. Sumir nota þetta í pólitískum tilgangi, fara í ákveðna pólitíska friðþægingu, í kapphlaupi að botninum eins og hæstv. forsætisráðherra sagði réttilega áðan, en að mínu mati þurfum við einfaldlega á skynsömum tækjum og tólum að halda sem eru trúverðug fyrir fólkið í landinu, rugga ekki efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma og eru í samræmi við eðlilegan takt í launaþróun í samfélaginu. Ekki það að þessum hópum sé alltaf haldið niðri.
Ég vil draga fram að það er rétt sem hefur komið fram hjá hæstv. forsætisráðherra að við formenn funduðum fyrir hátt á þriðju viku síðan þar sem okkur voru kynnt drög að þessu. Frumvarpið var þá ekki tilbúið. Við áttum ágætissamtal og reyndar stóð ég í þeirri trú að við formennirnir yrðum kölluð saman til að reyna bæði að þétta raðir og auka skilning á þeirri leið sem er verið að fara. Annar fundur var ekki boðaður en þetta er afrakstur þeirrar yfirlegu sem hefur verið af hálfu forsætisráðuneytisins og forsætisráðherra. Ég ætla einfaldlega að virða það og ætla í rauninni ekki að hafa á þessum tíma mikla fyrirvara nema í samræmi við þá sem ég setti fram áðan. Ég þarf einfaldlega að lesa og rýna betur bakgrunnsgögnin, þ.e. þegar kemur að dómstólunum og sjálfstæði þeirra í samhengi við stjórnarskrárbundin réttindi, V. kafla stjórnarskrárinnar sem tekur til dómenda. Ég held að við þurfum að vanda okkur og nýta tímann. Sumir segja að þing klárist hugsanlega um helgina. Ég veit ekki hvort stjórnarflokkarnir verði búnir að koma sér saman um sín mál fyrir þann tíma. Gott og vel, ef þing dregst fram í næstu viku höfum við enn meiri tíma til að vanda vel til verka. Það er ekki bara hægt að segja: Gott og vel, þá verður bara farið í mál. Auðvitað verður þá farið í mál. Reynum fjandakornið að vanda okkur hér meðan við erum með augun á boltanum og læra þá af reynslunni.
En þetta er snúið og alls ekki auðvelt viðfangsefni. Ég ætla að draga það fram að hæstv. forsætisráðherra hefur í gegnum tíðina í hinum ýmsu stöðum lagt sig fram um að reyna að ná einhverri skynsamlegri lausn í það og það skiptið sem við höfum staðið frammi fyrir alls konar aðstæðum. Við munum einmitt kjararáð og þá stórfelldu hækkun sem olli á sínum tíma mikilli reiði í samfélaginu. Samt var þetta uppsafnað. Það er bara ekkert hægt að tala um það, því að sama hvað við þingmenn segjum hér þá er engin samúð eða skilningur á því að við þurfum að fylgja einhverri launaþróun í landinu.
Þetta er verkefnið, að reyna að finna skynsama lendingu með okkar besta fólki. Ég vonast til þess að þeir sem munu fara yfir þetta — ég heyri að hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni fá málið til sín. Henni er vandi á höndum og hún verður að vanda sig. Það er ákall mitt til þeirra sem eru í efnahags- og viðskiptanefnd: Fáið dómstólaráð, fáið sérfræðinga sem eru búnir að fara yfir þetta áður til að koma í veg fyrir að við lendum alltaf í þessu aftur og aftur. Ég hélt satt best að segja síðast þegar við breyttum þessu að við værum búin að finna ákveðna lendingu. Það var byggt á niðurstöðum starfshóps ráðherra frá árinu 2019 að mig minnir. Í kjölfarið fórum við í þessar breytingar, allir flokkar, og áttum ágætissamráð og -samtal. Eins og ég segi hélt ég að við værum á þeim stað að vera komin með bæði sanngjarnt og gegnsætt módel, kerfi fyrir kjörna fulltrúa og embættismenn og aðra háttsetta innan kerfisins sem falla undir þetta, eins og til að mynda seðlabankastjóra o.s.frv. en ekki síst dómendur og saksóknara. Ég held að það sé hópur sem við þurfum sérstaklega að gæta okkar á þegar kemur að þessum málum.
Ég velti fyrir mér, af því að nú voru þetta í rauninni áunnin réttindi eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom inn á í stuttu andsvari, eitthvað sem þessir hópar eru búnir að vinna sér inn — þetta er eftirágreiðsla, eitthvað sem fólk, eins og það segir, telur sig eiga inni hjá vinnuveitanda. Þegar svo er og þetta safnast upp á ári með þessari miklu launaþróun, af því að mikil launaþróun hefur verið í landinu, mikil spenna sem hefur magnast upp og ýtt undir óstöðugleika að mínu mati í landinu að hluta til, þá er þetta allt í einu gríðarlega há fjárhæð. Þetta er há fjárhæð í samhengi hlutanna miðað við hvað aðrir eru að fá, ekki síst láglaunahóparnir. Eðlilega, og ég hefði nú vonað að ríkisstjórnin hefði vaknað fyrr úr rotinu þegar kemur að því að reyna að passa upp á efnahagslegan stöðugleika, er farið í það að stoppa þetta mál eða þessa launahækkun til að láta þetta ekki líta allt of illa út. En ég tek undir það með flutningsmanni, hæstv. forsætisráðherra, að það þarf að stíga þetta skref um leið, að fara í þessa vinnu samhliða. Við munum fá það til umfjöllunar í haust og ég bind vonir við að við förum einhvern tímann að læra af reynslunni og reynum að koma upp almennilegu umhverfi og kerfi utan um launakjör þessa hóps.
Ég tók eftir því að hæstv. ráðherra dró m.a. fram þær hækkanir sem hafa verið frá árinu 2019–2023, 31% hjá verkafólki og 22% hjá stjórnvöldum. En ég vil líka draga fram m.a. þá hópa — það er kannski ekki tengt þessu frumvarpi en við vitum að það er enn ósamið við BHM og Kennarasambandið. Hvernig hefur nú kaupmáttaraukning þeirra verið á árabilinu 2019–2023? Kaupmáttaraukning BHM er 2% á þessu bili, Kennarasambandsins 3%, ASÍ síðan 6% á þessu tímabili, SGS 15% og Eflingar 31%. Ég tel að við þurfum í stóru myndinni, til lengri tíma litið — ég ætla aðeins, virðulegi forseti, að fara frá þessu frumvarpi þó að það sé rótin að því að ég vildi koma hingað upp — að líta á samhengi hlutanna þegar kemur að samkeppnishæfu Íslandi, samkeppnishæfum lífskjörum og hvernig við tökum utan um fólk sem hefur sótt sér menntun. Það er áhyggjuefni að við horfum nú fram á 20 ára stöðnun í kaupmætti hjá háskólamenntuðu fólki. Fyrir samfélag sem vill byggja á nýsköpun, hátækni, rannsóknum og þróun er þetta verulegt áhyggjuefni. Það er ekki spurning að láglaunafólk þurfti að hækka og það var almenn ánægja og samhugur að fara þá leið á sínum tíma. En það er líka umhugsunarefni ef það er ekki hvati fyrir ungt fólk sérstaklega til að sjá tækifæri í að mennta sig og sjá arðsemina sem í því felst fyrir sig sjálft og fyrir samfélagið líka. Ég tala nú ekki um með þá lánastefnu sem hér ríkir, ekki bara í tengslum við íslensku krónuna, en hún náttúrlega ýtir undir það með öllum lánakjörum, öllum vaxtakjörum, hvort sem er hjá Menntasjóði eða á almennum húsnæðislánamarkaði, að þessir hópar verði undir, ungt fólk, fjölskyldufólk. Bent hefur verið á það, m.a. úr ræðustól. Hv. þm. María Rut Kristinsdóttir kom og vakti athygli á því hver staða ungs fólks, fjölskyldufólks, fólks með börn og fólks sem er nýbúið að mennta sig er. Þeirra staða er einfaldlega mjög erfið. Þegar til viðbótar kemur allt þetta erfiða vaxtaumhverfi, erfitt að láta enda ná saman í fæðingarorlofi, erfitt að láta enda ná saman við afborganir af húsnæðislánum eins og ég hef margoft farið yfir — ég er með tölvupóst eftir tölvupóst frá fólki sem hefur tekið húsnæðislán eða foreldrum fólks. Þetta eru allt saman millitekjuhópar sem eru að reyna að redda sér. Foreldrar fólks sem hafa miklar áhyggjur af því að börn þeirra tóku húsnæðislán sem eru búin að hækka úr í kringum 200.000 kr. í 390.000 kr., sem dæmi.
Það eru alltaf sömu hóparnir sem verða fyrir þessu og bera þessar þungu byrðar, sem fela það í sér að við erum annars vegar með krónuna og hins vegar kerfi sem er ekki að taka utan um fólkið okkar, hvort sem það er í fæðingarorlofi, á húsnæðismarkaði o.s.frv. Menntun spilar þar líka stóra rullu og ég hef verulegar áhyggjur nú þegar við erum í þessu máli að fjalla um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna og hvarflaði hugur minn að þessu: Hver eru skilaboð okkar til þeirra sem eiga eftir að semja, BHM og KÍ? Ef ég væri til að mynda ekki bara hæstv. fjármálaráðherra og forsætisráðherra heldur líka hæstv. háskóla- og nýsköpunarráðherra þá myndi ég hafa verulegar áhyggjur af þessari þróun á umliðnum 20 árum.
Þetta er risastórt viðfangsefni sem við þurfum líka að hafa í huga þegar við ræðum launakjör, hvort sem við erum að ræða launakjör þjóðkjörinna fulltrúa eða bara almenna launaþróun í landinu. Þetta er það sem við í Viðreisn höfum verið að ræða og höfum rætt m.a. á ýmsum fundum sem við höfum haldið um landið. Þegar við hittum fólk er það m.a. að benda á snúna aðstöðu þessa stærsta hóps sem stendur undir skattkerfinu á Íslandi. Við skulum heldur ekki gleyma því að við erum með eina hæstu og mestu skattbyrði í Evrópu. Við erum alveg í toppnum. Svo eru reyndar flokkar hér sem vilja auka enn frekar á skattbyrði fólks í landinu. Við í Viðreisn viljum fara aðra leið hvað það varðar og allir vita um þá miklu hagræðingu og þann mikla sparnað, ekki bara fyrir ríkissjóð í því formi að lækka greiðslur okkar vegna vaxta heldur myndi það líka hjálpa almennu launafólki í landinu, millitekjuhópunum, að búa við almennilegt stöðugt vaxtaumhverfi. Það er það sem við megum heldur ekki gleyma í þessu stóra samhengi.
Hvað þetta mál varðar þá er ýmislegt í þessu. Ég hef mikinn skilning á því sem er sett hér fram af hálfu hæstv. forsætisráðherra. Við í Viðreisn munum halda áfram að vinna að þessu þannig að komið verði upp trúverðugu, skilvirku og gegnsæju kerfi, sanngjörnu kerfi fyrir launaumhverfi þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna. Þeir sem eru í hv. efnahags- og viðskiptanefnd (Forseti hringir.) hafa að mínu mati verk að vinna. Það verður að vanda til verka og ég bið nefndarmenn að huga sérstaklega að þeim sem falla undir V. kafla stjórnarskrárinnar.