breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Það er tvennt sem við þurfum að fara yfir hérna, í fyrsta lagi 2016. Við hv. þingmaður lentum bæði því að vera þá nýkjörin inn á þing, í hennar tilviki aftur, og daginn eftir kjördag kom þessi leiðrétting frá kjararáði sem allir urðu skiljanlega brjálaðir yfir og sem hefur verið kölluð í umræðunni leiðrétting. En það sem var erfitt við þá leiðréttingu var að það var tiltölulega auðvelt að finna aðra viðmiðunardagsetningu og ef hún hefði verið valin hefði leiðréttingin í rauninni verið mun lægri, þannig að það skiptir máli hvenær var byrjað að miða við launaþróun hjá öðrum hópum, hvar talan endaði, og um það snerist í rauninni rifrildið. Þegar allt kom til alls var verið að velja vitlausa og hagstæða leiðréttingardagsetningu fyrir laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem skilaði þeim mun meiri hækkunum heldur en aðrir launahópar höfðu átt von á að fá og fengu. Ef önnur viðmiðunardagsetning hefði verið valin, ég man nú ekki alveg hverjar dagsetningar voru en kannski fyrir hrun og þróun þannig, og þetta núllað út á þann hátt hefðum við endað á allt öðrum stað með lægri laun. Síðan eru það skilaboðin sem er verið að senda hérna einmitt þeim sem er í kjaraviðræðum núna, BHM og svoleiðis. Því miður eru skilaboðin í raun og veru sú að þetta er launahækkun þeirra hópa frá því í fyrra. Það er í raun og veru það sem gerðist með launahækkunum t.d. BHM sem skiluðu sér í þeim útreikningum sem við erum að sjá núna. Það er rosalega erfitt að togast á um þetta og segja: Heyrðu, þetta er allt of mikil hækkun sem þið eruð að fá núna. Á móti eru ráðamenn að segja: Þetta er bara sú hækkun sem þið fenguð í fyrra, megum við þá ekki fá hana núna? Auðvitað er rosalega erfitt að glíma við það, svona eftiráhækkanir eru bara mjög erfiðar að glíma við, mjög skiljanlega.