breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Virðulegur forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni, eftiráhækkanir eru ávallt erfiðar. En þær eru niðurstaðan núna og þess vegna stöndum við frammi fyrir þessu máli, að þessi eftiráhækkun ár aftur í tímann var risa fjárhæð í rauninni þegar allt var uppsafnað miðað við þær viðmiðunardagsetningar sem lágu fyrir. Ég hefði gjarnan viljað hafa þetta á mánaðarfresti. Ég held að það hefði verið betra. Ég held að það hefði ekki valdið jafn miklum óróa í samfélaginu og það hefði verið eðlilegri samfella í tíma og aukið skilning. Ég held því miður að þetta hafi verið ákveðið ár í einu út af því að þar er einhver flækja í bókhaldinu. Það er eitthvað kerfislægt og ég held að við hefðum betur farið þá leið, ef það hefði átt að vinna áfram í því umhverfi sem við enn búum við. En ég er sammála því að eftiráhækkanir eru alltaf erfiðar. Um leið segi ég að ég geld líka varhuga við því að það verði farin nokkur sú leið sem var farin á sínum tíma og olli síðan dómsmálinu um að vera með afturvirkar lækkanir í rauninni, eins og var gert gagnvart dómurum og var farið í mál með. Við þurfum að vanda okkur og ég trúi ekki öðru en að við öll hér inni viljum gera það. Ég ætla líka að leyfa mér að brýna okkur að fara ekki í eitthvert pólitískt kapphlaup um það hver sé bestur eða sanngjarnastur eða svoleiðis hér inni. Við þurfum bara að finna leið sem er sátt um, er sanngjörn, er gegnsæ og er í samhengi við samfélagið. Það er það sem við þurfum að gera.
Hv. þingmaður spurði mig líka um leiðréttinguna 2016 og ég kem að því í mínu seinna svari, varðandi viðmiðunardagsetningar og að önnur viðmið (Forseti hringir.) hefðu getað leitt til lægri launa. Ég mun koma að því síðar.