154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[16:31]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, en þá kemur alltaf að því að við þurfum að ákveða leikreglurnar. Á endanum þurfum við alltaf að gera það, hvort sem við ákváðum þetta sjálf eða höfum þetta í höndum Kjaradóms eins og var á árum áður, síðan kjararáðs. Það var samt Alþingi sem ákvað kjararáð og ákvað ákveðnar forsendur, ákvað hverjir sitja þar, ákvað til hverra er leitað, þannig að á endanum er þetta okkar verkefni. Ég vil meina að við eigum að geta það ef við bara í rólegheitum náum að komast að lendingu og gefum efnahags- og viðskiptanefnd núna tækifæri til að rýna betur í það hvað frumvarpið felur í sér í samhengi við það sem ég hef áður komið inn á.

Árið 2016 var náttúrlega mikið umrót í samfélaginu. Þetta var risa hækkun og við komum einmitt bæði inn þá aftur. Ég vil ætla að þeir sem sátu í kjararáði hafi verið með bestu vitund að gera það sem þeir töldu best, skynsamlegast og réttast. Ég ætla bara að leyfa mér það og ég geng almennt út frá því að þannig sé fólk. Ég hef hins vegar enn og aftur verulegar áhyggjur af því hver þróunin verður varðandi menntað fólk, varðandi þann ávinning sem samfélagið er síðan að viðurkenna að það feli í sér að þú menntir þig. Mér finnst áhyggjuefni að bæði Samtök atvinnulífsins og aðrir aðilar á vinnumarkaði sem þegar hafa samið sjá ekki mikilvægi þess. Það skiptir máli að ýta undir kaupmátt þessara hópa, sem hefur ekkert vaxið síðan árið 2000. Það finnst mér vera eitt af okkar stóru verkefnum og ég er ekki að sjá einhverja forystu af hálfu ríkisstjórnar um það hvernig samfélag við ætlum að byggja hérna upp. Það er talað og talað en síðan er ekki farið í þær aðgerðir sem þarf til þess að ýta undir þá hópa til að við getum skapað þetta þekkingarmiðaða, nýsköpunarmiðaða, (Forseti hringir.) menntamiðaða umhverfi (Forseti hringir.) sem við vonandi öll berjumst fyrir og sjáum fyrir okkur að lifa í.