breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Frú forseti. Ég mátti til með að taka aðeins þátt í þessari umræðu eftir að ég heyrði hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fara aðeins yfir forsöguna vegna þess að hún segir okkur dálítið mikið um vandræðin sem þingið hefur staðið frammi fyrir í mjög langan tíma varðandi það hvernig eigi að ákvarða kaup og kjör þeirra sem hér starfa. Hér var t.d. nefnt dæmið frá 2016 þegar þáverandi kjararáð innleysti í rauninni uppsafnaðar launahækkanir. Kjararáð átti að taka mið af því sem gerðist á vinnumarkaði en gerði það mjög sjaldan þannig að hækkanir komu í rykkjum. Þetta held ég að hafi verið m.a. vegna þess að það er pólitískur vilji til þess að hækka laun þingmanna ekki of skarpt. Það vekur úlfúð í samfélaginu ef þingmenn bera með sér að vera að maka krókinn. Þess vegna hækkaði kjararáð sjaldan og það hækkaði laun þingmanna mjög mikið í hvert sinn. Þingið þarna, 2016–2017, brást við því með því að lækka á móti starfskostnað og ferðakostnað sem þingmenn fengu greiddan mánaðarlega. Þarna þykir mér þingið hafa stigið dálítið mikið feilskref vegna þess að starfskostnaður og ferðakostnaður eiga í grunninn að vera endurgreiðsla á útlögðum kostnaði, eiga að standa straum af sérstökum kostnaði við það að sinna störfum. Þingfararkaupið er síðan allt annað. Það eru launin sem fólk fær.
Þarna voru endanlega máð út mörkin á milli þess sem telst vera laun þingmanna og þess sem er kostnaður sem hlýst af störfum þingmanna sem er eðlilegt að þingið endurgreiði eins og hver annar vinnustaður. Það má nú segja að þau mörk hafi kannski verið óljós alveg frá upphafi vegna þess að ef við lítum enn aftar í söguna, til ársins 1995, þegar lög um þingfararkaup og þingfararkostnað taka á sig sirka núverandi mynd, þá er starfskostnaði og þingfararkostnaði komið á, á sama tíma og þáverandi kjaradómur hækkar þingfararkaup um 10%. Þessi 10% þótti talsmönnum verkalýðshreyfingarinnar vera dálítið mikið miðað við ástand á vinnumarkaði en þeim mun meira þótti þeim um hækkunina sem fólst í rauninni í því sem þingmenn gerðu til hliðar með því að innleiða starfskostnaðar- og ferðakostnaðargreiðslurnar sem á þeim tíma jafngiltu þriðjungi af þingfararkaupi. Upphaflega átti þetta að verða skattfrjáls greiðsla, engin krafa gerð um að sýna fram á reikninga eða neitt annað þannig að þarna upphófst eðlilega mjög mikill sjálftökukór, gagnrýni á þingmenn var mjög hörð árið 1995 vegna þessa.
Ég nefni þetta bara vegna þess að við höfum alltaf verið í þessari togstreitu á milli einhvers konar sjálfvirkni þar sem þingið getur sagt: Heyrðu, við erum bara hérna, við snertum ekki á þessu, það er bara eitthvert lið úti í bæ eða einhverjar vísitölur sem ákvarða okkar laun, og síðan beinna inngripa, þó að það sé ekki alltaf í þingfararkaupið sjálft, eins og er verið að leggja til í rauninni núna með því að tempra hækkunina þannig að hún verði ekki jafn mikil og vísitalan myndi segja til um, eða með því að pota bara beint í þessar kostnaðargreinar sem forsætisnefnd stýrir. Þetta er togstreita sem náði ákveðnum hápunkti þegar kjararáð var lagt niður svo að segja með einu pennastriki árið 2018 en síðan var það ekki fyrr en ári síðar sem samþykkt voru lög sem settu á blað hvað ætti að taka við af kjararáði.
Þar langar mig að nefna það sem mér finnst vera annað feilskref sem það frumvarp sem við fjöllum hér um í dag byggist á. Það skref felur í sér að þegar kaup þessara hópa sem féllu áður undir kjararáð var upphaflega fest með krónutölu inn í lög þá var það gert án þess að þingið legðist í einhverja úttekt á því hvort þessi laun þessara ólíku hópa væru eðlileg eða sambærileg eða í réttu samhengi hver við önnur. Það var einfaldlega tekin sú tala sem kom út úr síðustu ákvörðun kjararáðs og hún var fest í lög en þær ákvarðanir spönnuðu margra ára tímabil þannig að þeir hópar sem áttu elstu ákvörðunina voru kannski vanmetnir að launum miðað við þá hópa sem styst var síðan kjararáð hafði úrskurðað um. Þarna hefði þingið alveg mátt leggjast í einhverja rannsóknarvinnu, leggjast í það að launasetja þessa hópa þannig að það væri eitthvert eðlilegt jafnvægi á milli þeirra. En aftur vorum við á þessum stað að þingið vildi halda einhverri armslengd frá ákvörðun um kaup og kjör og tók þess vegna bara einhverja tölu sem þetta fólk úti í bæ hafði ákvarðað á ólíkum tímum og festi í lög, tengdi síðan við vísitölu, sem var reyndar ekki einhver vísitala sem Hagstofan átti á lager heldur var búin til ný vísitala. Það reyndist vera nokkurt vandamál vegna þess að það hafa verið deilur um það hvort þeirri vísitölu hafi verið beitt rétt og hvort hún hafi verið reiknuð rétt á þeim örfáu árum sem eru liðin frá því að hún var tekin í notkun.
En þarna tekur þingið ákvörðun. Pólitísk ákvörðun er tekin um það hver grunnlaunin skuli vera frá ákveðnum tímapunkti og svo er sett af stað sjálfvirkt kerfi þannig að þingið geti sagt að hér sé bara einhver vísitala að störfum þegar kemur að launum æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa. En aftur kemur þessi tilhneiging hjá þingheimi til að grípa inn í með sérstökum lögum vegna sérstakra aðstæðna í samfélaginu. Þetta fer að verða árviss viðburður þannig að við þurfum kannski að velta fyrir okkur hvort þessar sérstöku aðstæður séu bara það almennar að við þurfum að fara að endurskoða kerfið. Alltént virðist sjaldnar sem vísitalan fær að standa óbreytt en að henni sé ýtt til hliðar.
Mig langar að nefna þetta, frú forseti, vegna þess að einhvern tímann þyrftum við kannski að taka almennilega umræðu um það hvernig eigi að ákvarða kjör þjóðkjörinna fulltrúa. Þá held ég að sé góð hugmynd, eins og hefur komið fram hér í umræðum, að leita fulltingis fólks hér utan þingsins sem engra persónulegra hagsmuna hefur að gæta, leita kannski til almennings. Þetta væri nú efni í lítið borgaraþing eða eitthvað svoleiðis, að fá einhverja sameiginlega niðurstöðu í þessu máli, eða eins og hefur líka verið bent á og er svo sem gömul hugmynd úr verkalýðshreyfingunni, gott ef Ögmundur Jónasson talaði ekki fyrir því einhvern tímann í fyrndinni þegar hann var þingmaður, að beintengja kjör þingfólks við kjör einhverra hópa í samfélaginu þar sem Alþingi ákvarðar kjör þeirra, eitthvert margfeldi af grunnframfærslu örorkulífeyris eða eitthvað álíka.
Svo þurfum við kannski bara að spyrja okkur hvort ákvörðun um það hver starfskjör kjörinna fulltrúa eru sé kannski bara það pólitísk að frekar en að vera alltaf að reyna að búa til einhver sjálfvirk kerfi sem við getum þóst þvo hendur okkar af, hvort sem þau heita kjaradómur eða kjararáð eða þessi launavísitala sem miðað er við í dag, þá þurfi þingið einfaldlega að axla þá ábyrgð og standa undir henni að ákvarða laun þingmanna árlega með lögum eða einhverri álíka reglusetningu. Þannig er málum háttað í sumum þingum í kringum okkur. Annars staðar eru utanaðkomandi aðilar settir í starfskjaranefndir. Það eru ýmsar útfærslur til.
Ég held alla vega, frú forseti, að við séum farin að nálgast þann stað að það kerfi sem var innleitt hér eftir niðurlagningu kjararáðs sé nálægt því að vera gengið sér til húðar. Það að það þurfi oftar en ekki sérstakt inngrip að frumkvæði forsætisráðherra til þess að tempra launahækkanir þingmanna bendir til þess að mögulega ættum við bara að ganga að þessu verkefni sem vísu á hverju ári. Mögulega þyrftum við bara að setjast yfir það á einhverjum vettvangi innan þingsins árlega að ákvarða laun og svo bara standa eða falla með því í almennri umræðu hvernig fólki líst á þá ákvörðun.
Fleiri ætlaði ég ekki að hafa þessi orð, ég held að ég láti þetta duga.