154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[16:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði tímabundin heimild til þess að ákvarða úrvinnslugjald miðað við líklegustu tegund söluumbúða þegar innflytjandi getur hvorki gefið upp þyngd og tegund umbúða né meginsöluumbúðir. Einnig eru lagðar til tilteknar uppfærslur á viðaukanum í ljósi fenginnar reynslu.

-Þá er lögð til breyting á fyrirkomulagi álagningar úrvinnslugjalds á ökutæki í ljósi þess að álagning gjaldsins á sér stað við nýskráningu í stað tollafgreiðslu. Með breytingunni verður kveðið með skýrari hætti á um greiðanda gjaldsins, grundvöll þess og gjalddaga og greinarmunur gerður á þeirri tilhögun og venjubundinni tilhögun álagningar við tollafgreiðslu. Breytingunni er ætlað að tryggja að álagning úrvinnslugjalds leggist í öllum tilvikum á framleiðendur og innflytjendur í samræmi við hugmyndafræði framlengdrar framleiðendaábyrgðar, en ekki á eiganda.

-Að lokum eru lagðar til lagfæringar á lögunum vegna ábendinga Úrvinnslusjóðs eða sem leiðir af gildistöku laga nr. 103/2021.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í þeim umsögnum sem bárust nefndinni kom fram almenn samstaða um málið og mikilvægi þeirra breytinga sem lagðar eru til undirstrikað.

Virðulegi forseti. Líkt og bent er á í samráðskafla greinargerðar með frumvarpinu komu fram efnislegar athugasemdir við frumvarpið þegar drög að því voru birt í samráðsgátt stjórnvalda. Hluti þeirra umsagna sem bárust snúa að þörf á heildarendurskoðun á fyrirkomulagi framlengdrar framleiðendaábyrgðar eða áskoranir sem leiðir af nýlegum breytingum á fyrirkomulaginu vegna þess hvernig það er útfært hér á landi. Núverandi kerfi og fyrirkomulag söfnunar og úrvinnslu úrgangs hefur verið þróað miðað við aðstæður hérlendis og þeir kostir nýttir sem fylgja því að Ísland er eyríki. Bent hefur verið á að flokkun undir tollskrárnúmer og upplýsingagjöf um umbúðir er skilyrði tollafgreiðslu ólíkt því sem á við víða annars staðar þar sem upplýsingagjöfin stendur utan tollkerfa og innheimta úrvinnslugjalds fer jafnan fram á grundvelli skilagreina sem framleiðendur og innflytjendur skila inn. Fyrirkomulagið hérlendis er því ólíkt hvað það varðar þó að almennt megi segja að heimturnar séu góðar enda þátttaka í kerfinu mikil.

Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga til nefndarinnar kemur fram að bundnar séu vonir við að sett verði af stað vinna við endurskoðun á framkvæmd framlengdrar framleiðendaábyrgðar og starfsemi Úrvinnslusjóðs. Í því samhengi bendir Samband íslenskra sveitarfélaga á í umsögn sinni að úrvinnslugjald standi ekki undir stærstum hluta þess kostnaðar sem til fellur við meðhöndlun úrgangs eins og að var stefnt með innleiðingu hringrásarhagkerfis með lögum nr. 103/2021.

Innheimta úrvinnslugjalds í gegnum tollskrá hefur um margt gert innheimtuna auðvelda, einfalda og skilvirka og undanskot frá greiðslu gjaldsins fátíð hérlendis í samanburði við nágrannaþjóðir. Með þessu fyrirkomulagi er til að mynda auðvelt að innheimta úrvinnslugjald af gjaldskyldum varningi sem keyptur er í netverslunum. Eigi að síður hefur fyrirkomulag innheimtunnar sem og Úrvinnslusjóðs sætt gagnrýni og ljóst er að þörf er á að skerpa á framkvæmdinni svo að markmið um fulla innleiðingu hringrásarhagkerfisins nái fram að ganga.

Meiri hlutinn tekur undir ábendingar sem fram koma í umsögnum og telur brýnt að ráðist verði í endurskoðun á kerfinu hið fyrsta. Við hana þurfi m.a. að horfa til stjórnsýsluúttektar ríkisendurskoðanda á Úrvinnslusjóði frá árinu 2022, skýrslu starfshóps um hlutverk framleiðenda í hringrásarhagkerfi frá sama ári og nýrrar umbúðatilskipunar sem vænta má á vettvangi Evrópusambandsins.

Í 12. gr. frumvarpsins er lagt til að lögfest verði tímabundin heimild til að ákvarða úrvinnslugjald á söluumbúðir út frá líklegustu tegund þeirra þegar innflytjandi getur hvorki gefið upp þyngd og tegund umbúða né skilgreint meginsöluumbúðir. Ákvæðinu er ætlað að taka á hættu á því að innflytjendur sem ekki hafa slíkar upplýsingar gefi í einhverjum tilvikum upp rangar upplýsingar um umbúðir og tryggja að álagning úrvinnslugjalds sé rétt og endurspegli raunverulegan innflutning á umbúðum. Gert er ráð fyrir að ákvæðið gildi til 1. janúar 2026 til þess að gefa innflytjendum tíma til að aðlaga sig að fullu að kröfum í nýju umbúðamódeli í viðauka XVIII við lögin.

Meiri hlutinn ítrekar að með þessari tímabundnu heimild er ekki verið að veita undanþágu frá greiðslu né afslátt af úrvinnslugjaldi. Mikilvægt er að hafa í huga að innflytjandi ber ábyrgð á því með hvaða hætti hann stendur skil á lögboðinni greiðslu úrvinnslugjalds þegar hann býr ekki yfir nægum upplýsingum um meginsöluumbúðir.

Meiri hlutinn leggur til nokkrar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og hafa ekki efnisleg áhrif.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til.

Undir nefndarálitið rita, ásamt þeim sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Frú forseti. Að lokum vil ég segja að með gildistöku laga nr. 103/2021, sem gjarnan eru kennd við hringrásarhagkerfið, þá stigum við mikilvægt skref til þess að hraða innleiðingu þess hérlendis. Þetta frumvarp og önnur skyld eru einungis angi af hringrásarkerfinu, angi sem engu að síður þarf að virka svo við getum raunverulega mætt hugmyndinni um framlengda framleiðendaábyrgð sem er þegar upp er staðið í þágu neytenda, sömu neytenda og hafa brugðist vel við breyttu regluverki eins og dæmin sanna, til að mynda hér á höfuðborgarsvæðinu — stærsta samlagssvæði úrgangssöfnunar hérlendis — þar sem söfnun á lífúrgangi hefur gengið framar vonum, enda fólki gert betur kleift að halda til haga hreinum úrgangsstraumum með breyttri söfnun við húsvegg.