154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[16:53]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þetta nefndarálit sem hann stendur að ásamt öðrum þingmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég veitti því athygli að í áliti meiri hluta nefndarinnar, þar sem fjallað er um framlengda framleiðsluábyrgð, kemur fyrir þessi setning sem ég vil gjarnan spyrja hv. þingmann út í og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Núverandi kerfi og fyrirkomulag söfnunar og úrvinnslu úrgangs hefur verið þróað miðað við aðstæður hérlendis og þeir kostir nýttir sem fylgja því að Ísland er eyríki.“

Ég vil spyrja hv. þingmann hvers vegna þessi sérstaða Íslands sem eyríki er ekki lögð til grundvallar þegar önnur kerfi hér innan lands eru þróuð, líkt og t.d. raforkulöggjöfin. Ríkisstjórninni þótti, að mig minnir, ekki koma til greina að krefjast undanþágu frá raforkulöggjöf ESB þegar kom að innleiðingu orkupakkanna og henti okkur beint inn í orkupakkana með þeirri markaðsvæðingu sem því fylgdi og þeim reglum sem þar gilda um flutning raforku milli landa. Svo var einnig svipað uppi á teningunum þegar kom að innleiðingu flugskatts síðustu jól. Með herkjum tókst að keyra út eins árs undanþágu en svo munu skella á okkur, eyríki í ballarhafi, nákvæmlega sömu flugskattar og leggjast á flugmiða milli Hollands og Þýskalands. Hvers vegna eru það aðeins sum kerfi, sem taka mið af okkar sérstöðu sem eyríki, en ekki öll?