154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og afar áhugaverða innkomu í löggjöf sem hefur einmitt þróast að hluta til vegna sérstöðu okkar sem eyríkis en tengist umhverfismálum eins og til að mynda hægt er að gera með akkúrat þau tvö atriði sem hv. þingmaður nefndi hér og kom inn á téðan orkupakka, sem er áhugaverður vinkill. En svo ég svari fyrst efnislega í samhengi þess máls sem við ræðum hér þá eru einmitt miklir kostir við það að við erum eyríki — við erum ekki bara háð innflutningi í stóru og smáu, bæði til neyslu hérlendis beint, einstaklinga og/eða bara skepna í formi fóðurs — þannig að við höfum fyrir vikið kannski aðeins betri stjórn á okkar landamærum. Á móti kemur að við þurfum auðvitað líka að tryggja að því sem kemur í umbúðum og við erum að neyta verði komið í lóg með sómasamlegum hætti. Lengi komumst við upp með að gera það ekki að mínu mati með sómasamlegum hætti. En hér erum við að horfa hins vegar til Evrópulöggjafar þar sem við erum að stíga skref sem afar mörg hafa kallað eftir með aukinni vitund í umhverfis- og loftslagsmálum, þ.e. að við náum fram hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins og þar með talið framlengdrar framleiðendaábyrgðar í þágu umhverfisins en líka neytenda sem eru afar viljugir til þess að gera betur.

Ef mér vinnst tími, virðulegi forseti, þá skal ég kannski reyna að koma aðeins inn á tenginguna við þriðja orkupakkann en það er að mínu viti óskylt mál. En ég held að ég skilji samlíkingu hv. þingmanns í þessu samhengi og hlakka til að heyra seinna andsvar hans.