úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í mínu seinna andsvari vildi ég víkja að öðru atriði, þ.e. Úrvinnslusjóðnum sjálfum. Á 151. löggjafarþingi var lögð fram skýrslubeiðni en ég sé nú ekki hvort sú skýrsla hafi nokkurn tíma borist. Það er kannski tilefni til þess að skoða það og leggja hana fram aftur. En í þessari skýrslubeiðni er bent á, með leyfi forseta:
„… dæmi þess að stór vigtaður hluti þess plasts sem fluttur er úr landi, og þar með greiddur kostnaður fyrir af Úrvinnslusjóði, séu óhreinindi. Þar með eru opinberar tölur rangar og gefa ekki rétta mynd af raunverulegu magni plasts, þrátt fyrir að fyrir það sé greitt fullt verð með opinberu fé. Einnig hafa verið nefnd dæmi þess í umræðum um þessi mál að töluvert magn þess plasts sem ætlað er til útflutnings, og fyrirtæki fá greitt fyrir sem slíkt, sé í raun urðað á Íslandi. Torvelt er að nálgast opinberar tölur yfir ráðstöfun fjármagns sjóðsins, þar sem ekki hafa verið birtar ársskýrslur Úrvinnslusjóðs frá árinu 2016.“
Eru þetta ekki atriði sem löggjafinn þarf að hlutast til um að verði rannsökuð svona fyrst við erum að ræða hér um úrvinnslugjald á annað borð?