úrvinnslugjald.
Virðulegur forseti. Ég hygg að skýrslan sem hv. þingmaður vísar hér til, eða öllu heldur skýrslubeiðnin sem vísað var til, sé nákvæmlega hin sama skýrsla og ég fór hér yfir í framsögu minni og kemur reyndar skýrt fram í nefndarálitinu, svo ég bara vísa í það, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn tekur undir ábendingar sem fram koma í umsögnum og telur brýnt að ráðist verði í endurskoðun á kerfinu hið fyrsta.“
Þarna er annars vegar verið að vísa í verkun þess hvernig framlengd framleiðendaábyrgð birtist í okkar vinnu, en líka Úrvinnslusjóðsins sjálfs.
Svo ég haldi áfram um þessa endurskoðun, virðulegi forseti:
„Við hana þurfi m.a. að horfa til stjórnsýsluúttektar ríkisendurskoðanda á Úrvinnslusjóði frá árinu 2022.“
Það er held ég niðurstaðan sem hv. þingmaður er að vísa í þegar hann talar um skýrslubeiðni sem hefur verið til töluvert mikillar umfjöllunar, bæði í stjórnkerfinu hér á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins, umhverfis- og samgöngunefndar þingsins og við höfum komið inn á í ýmsum umræðum hér. Til þess að orða það nú kannski stuttlega þá hefur verið gerð meiri háttar bragarbót á málum. Sannarlega má örugglega gera betur og meira, en á það bendum við í meiri hlutanum m.a. í þessu áliti að nauðsynlegt sé að horfa til endurskoðunar á þessu fyrirkomulagi og leggja m.a. téða skýrslu til grundvallar því sem hv. þingmaður vísar í sem og skýrslu starfshóps um hlutverk framleiðenda í hringrásarhagkerfi og nýja umbúðatilskipun sem vænta má á vettvangi Evrópusambandsins eins og ég fór yfir áðan í framsögunni.
Kannski ég segi eitt að lokum, virðulegi forseti. Það er sómi að því að standa vel að úrgangsstjórnun í samhengi stóru hlutanna og þar eigum við ekki að fara neinar styttri leiðir að mínu viti og (Forseti hringir.) það skiptir mjög miklu máli að við vöndum til verka eins og við lifandi getum.