úrvinnslugjald.
Frú forseti. Það er kannski rétt að byrja á því að nefna það að ágreiningur milli minni og meiri hluta í þessu máli er ekki meiri en svo að sú breytingartillaga sem við leggjum til er efnislega keimlík því sem lagt er til í nefndaráliti meiri hlutans. Mig langar hins vegar að nota þetta tækifæri til að fara aðeins yfir þennan lagabálk og þetta kerfi í stóru myndinni. Það er nefnilega rétt, eins og hv. framsögumaður meiri hluta nefndi og eins og stendur í nefndaráliti meiri hluta, að við erum að nýta okkur ákveðna landfræðilega kosti þess að vera Ísland. Með því að innheimta úrvinnslugjald við tollafgreiðslu er tryggð ákveðin skilvirkni í kerfinu að því leyti að heimtur eru miklar. Það er hægt að sjá til þess að nánast öll sú vara sem inn í landið kemur fari í gegnum hendur tollara sem geti þá í leiðinni smurt úrvinnslugjaldi á, eftir því sem við á, þannig að hægt sé að tryggja að varan komist í réttan farveg þegar líftíma hennar er lokið. Hins vegar er þetta kerfi, sem er svo skilvirkt þegar við horfum á heimturnar, að ýmsu leyti mjög óskilvirkt. Það endurspeglast t.d. í því að við erum hér með bók, við erum með frumvarp sem telur ekki nema þrettán greinar en þær dreifa sér yfir 49 síður. Það er vegna þess að margar greinarnar eru bara heil síða af excel-skjali, bara talnarunur á talnarunur ofan. Þegar við erum farin að prenta excel-skjöl út í bókarformi þá erum við alveg komin á þann stað að það megi spyrja sig hvort við séum að beita réttu verkfæri, hvort lög sem byggja ofan á tollskrá séu endilega besta leiðin til að tryggja t.d. gagnsæi, tryggja það að almenningur eða hagsmunaaðilar eða þingmenn sjálfir geti glöggvað sig á því hvað stendur í lögum eða frumvörpum. Síðan gerir þetta náttúrlega allar breytingar gríðarlega þungar í vöfum. Tollskráin er nefnilega svolítið kvik. Hún á það til að að skiptast upp eftir því sem innflutningur breytist eða framleiðsluaðferðir og það eru alls konar minni háttar breytingar líka sem eiga sér stað með reglubundnum hætti sem geta leitt til þess að það þurfi hreinlega að breyta lögum til að lög um úrvinnslugjald endurspegli tollskrána eins og hún er á hverjum tímapunkti.
Við erum með ágætt sýnidæmi í frumvarpinu um það hvað getur leitt af þessu. Í c-lið 4. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á fjórum tollskrárnúmerum sem komu inn með títtnefndum hringrásarlögum 2021. Sú málsgrein sem verið er að breyta þar er stór hluti af síðu með átta talna talnarunum, ætli þær séu ekki svona 60 talsins hér í þessum reit og það er verið að breyta fjórum þeirra. Þegar við skoðum í greinargerðinni hvert tilefnið er þá er það vegna þess að ábendingar hafi komið frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis og Úrvinnslusjóði þess efnis að gera þurfi lagfæringar í kjölfar breytinga sem voru gerðar á töflunni með hringrásarlögunum 2022.
Ég tók mig til og fletti upp í tollskránni hvaða númer þetta væru og út á hvað þessar lagfæringar gengju. Og já, hérna er væntanlega bara villa, væntanlega hefur slæðst inn sú villa að í staðinn fyrir að nefna þarna vörur sem falla undir kafla 4823 í tollskránni, þá hafi þær ranglega verið færðar undir kafla 4822. Það munar þarna einum tölustaf en það munar náttúrlega öllu, einn tölustafur er allt í þessari blessuðu tollskrá. Kafli 4822, sem sagt sá rangi, fjallar um kefli, spólur, snældur og áþekkar uppistöður úr pappírsdeigi, pappír eða pappa. Þar undir eru tveir undirflokkar og hvorugur er með samsvörun við þá undirflokka sem eru í greininni sem lagt er til að breyta, þannig að þetta hefur bara verið skýr villa. Ég held að hugmyndin hafi ekki verið sú að láta kefli til að vinda úr spunagarn vera án úrvinnslugjalds eins og hugmyndin er með þessari grein í lögunum. Ef við skoðum hins vegar greinarnar eftir leiðréttingu þá erum við þar að tala um einnota ílát undir matvæli, húðuð úr plasti eða sem innihalda plast. Hérna erum við væntanlega að tala um ansi drjúgan flokk, við sjáum fyrir okkur pappamálin sem er hægt að fá súpur í eða kannski Tetra Pak-fernurnar, þetta eru þessir bastarðar þar sem er búið að blanda saman pappa og plasti þannig að það er erfitt að endurvinna þetta en þetta er einnota. Við sjáum náttúrlega í vörukörfunni okkar alltaf þegar við förum út í búð að þetta er ansi stór flokkur og það er því gríðarlega mikilvægt að ná þessari leiðréttingu fram þannig að það sé skýrt að þessi stóri flokkur heyri undir lögin. En að sama skapi minnir þetta okkur á hversu þunglamalegt það er að breyta þessum reglum í gegnum lagasetningu sem byggir á þessum gríðarstóru töflum sem tollskráin er.
Þetta er í rauninni það sem við í minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar gerum að kjarna okkar nefndarálits. Við viljum einfaldlega benda á að frumvarpið sýnir dálítið vel hversu flókið og viðkvæmt þetta lagaumhverfi úrvinnslugjalds er og þó að greinarnar séu ekki nema þrettán þá dreifast þær yfir 49 blaðsíður sem flestar innihalda langar talnarunur eða töflur og þar með eru möguleikar fólks til að glöggva sig á stöðu laganna afar takmarkaðir.
Þetta stafar af þeirri leið sem var farin hér á landi, eins og ég nefndi, að leggja úrvinnslugjald á innflutta vöru við tollafgreiðslu hennar og þó að þar sé um að ræða mjög skilvirka leið til að tryggja að gjaldtakan eigi sér stað þá dregur það á sama tíma úr gagnsæi og gerir allar breytingar þungar í vöfum. Þá er ótalin þessi hætta á villum sem ég er búinn að benda á með dæminu um c-lið 4. gr. frumvarpsins þar sem lögð er til leiðrétting með því að færa undir kafla 4823 í tollskránni vöruflokka sem með samþykkt laga nr. 172/2022 voru ranglega færðir undir kafla 4822.
Líkt og meiri hlutinn tekur minni hlutinn undir ábendingar umsagnaraðila um mikilvægi þess að ráðast í endurskoðun á kerfinu hið fyrsta en við þá endurskoðun þarf að líta sérstaklega til þess hvort of mikið flækjustig felist í því að stýra úrvinnslugjaldinu með þessum hætti, með lögum sem styðjast við tollskrá sem breytist reglulega. Minni hlutinn tekur undir rök þessu tengd sem birtast í nefndaráliti meiri hlutans en telur vænlegra til árangurs að hvetja ráðuneytið ekki bara til aðgerða í nefndaráliti eins og meiri hlutinn leggur til, heldur leggjum við í minni hlutanum til þá breytingu að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem hljóði þannig:
„Ráðherra skal eigi síðar en 1. desember 2024 flytja Alþingi skýrslu um áform sín um endurskoðun á kerfi og fyrirkomulagi söfnunar og úrvinnslu úrgangs, þar sem m.a. sé horft til stjórnsýsluúttektar ríkisendurskoðanda á Úrvinnslusjóði frá árinu 2022, skýrslu starfshóps um hlutverk framleiðenda í hringrásarhagkerfi frá sama ári og nýrrar umbúðatilskipunar sem vænta má á vettvangi Evrópusambandsins. Skýrslu ráðherra skal vísa til umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar.“
Með þessu teljum við í minni hlutanum að ráðherra sé hvattur enn meira til dáða. Honum er þarna gefin skýr tímalína til að eiga í samtali við Alþingi og skila einhverri áfanganiðurstöðu á leið sinni að því að breyta kerfinu. Það skín í gegnum þessa breytingartillögu að ekki er verið að kalla eftir því að heildarendurskoðuninni ljúki á þessum til þess að gera skamma tíma, sem er til 1. desember næstkomandi, heldur einfaldlega verði ráðuneytið búið að ráðast í einhverja raunverulega vinnu við að setja það verk af stað. Skýrsla sem umhverfis- og samgöngunefnd fjallar um geti síðan verið grundvöllur einhvers samtals innan þingsins eða milli hagsmunaaðila eða almennings um það hvernig fólk sjái best fyrir sér að þetta kerfi þróist áfram til framtíðar.
Mér sýnist ég búinn að gera grein fyrir helstu atriðum og breytingartillögu í áliti minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem samanstendur af þeim sem hér stendur og fulltrúa Viðreisnar í nefndinni, hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur. Ég legg til að sú breyting nái fram að ganga.