úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans afbragðsgóðu ræðu. Ég vildi spyrja hv. þingmann út í eitt atriði sem kemur fram í nefndaráliti því sem hann flutti þar sem segir, með leyfi forseta:
„Greinar frumvarpsins eru aðeins þrettán talsins en dreifast yfir 49 blaðsíður, þar sem flestar innihalda langar talnarunur og töflur. Möguleikar fólks til að glöggva sig á stöðu laganna eru því afar takmarkaðir.“
Mér þykir þetta verðug ábending í nefndarálitinu og vildi spyrja hv. þingmann hvort hann deildi mínum áhyggjum af því að löggjöf sé sífellt meira að þróast í þá átt að lögin verði flóknari og að meðalmaður geti nánast ekki aðhafst neitt nema að ráðfæra sig við lögfræðinga eða stjórnvöld og fá upplýsingar um hvað megi og hvað megi ekki gera. Þá er viðleitnin hjá stjórnvöldum hægt og hægt að þróast í þá átt að sífellt færri stofnanir veita persónulega þjónustu og þá er það helst á milli klukkan 10 og 15 á virkum dögum vegna þess að það er búið að skera niður allt sem heitir mannleg stjórnsýsla í þágu þess að ná fram þessum svokölluðu aðhaldskröfum fjárlaga hvers árs.