154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[17:15]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég deili þeim áhyggjum með hv. þingmanni að ákveðin tegund af lögum sé orðin of flókin og óaðgengileg fyrir allan almenning og ekki bara sauðsvartan almúgann heldur líka sérfræðinga. Það dugar ekkert að ráðfæra sig við lögfræðing og stjórnvöld til að komast til botns í heilum opnum sem eru ekkert annað en excel-skjal. Svona reglur ganga frekar illa upp útprentaðar á bók eða í PDF eða á vefsíðum sem eru það sem þingskjöl eru gefin út á. Kannski verður niðurstaða þeirrar vinnu sem ég vona að fari fljótlega í gang sú að tollskráin sé besti grundvöllurinn fyrir þessa gjaldtöku. En þá þurfum við að breyta tækninni við það hvernig við beitum henni. Það er ekki hægt að krefjast þess að fólk stauti sig í gegnum þessar töflur sem ég ímynda mér að kannski bara tveir menn á landinu kunni almennilega, ég ímynda mér að það sé bara einhver einn aðili hjá Skattinum og annar hjá ráðuneytinu sem geta lesið í gegnum þetta. En mögulega, með einhverri tæknilausn, væri hægt að ná utan um þetta þannig að hægt sé að fletta upp í þessu. Ég efast um að við komumst á þann stað að hver sem er gæti bara komið að borðinu og skilið allt sem þarna stendur, en alla vega þannig að fólk á skrifstofu hjá innflytjendum geti auðveldlega áttað sig á því hvert gjaldaumhverfið er fyrir vörurnar sem viðkomandi er að flytja inn. Ég held að það sé mikil þoka í kringum það á mörgum skrifstofum, ekki vegna þess að fólk sé ekki hæft heldur vegna þess að gögnin eru bara óskýr.