úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér datt í hug, þegar hv. þingmaður var að fílósófera með það að það væru hugsanlega bara tveir menn á landinu sem skildu þessar töflur, að mín litla reynslu af að vinna með gervigreind er orðin þannig að ég held að það endi bara með því að maður ýti á einn takka og gervigreindin segi manni hvað stendur í þessum lögum öllum og reglugerðum.
Í mínu seinna andsvari vildi ég spyrja hv. þingmann út í breytingartillögu þá sem gerð er í nefndaráliti hans þar sem segir, með leyfi forseta:
„Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ráðherra skal eigi síðar en 1. desember 2024 flytja Alþingi skýrslu um áform sín um endurskoðun á kerfi og fyrirkomulagi söfnunar og úrvinnslu úrgangs, þar sem m.a. sé horft til stjórnsýsluúttektar ríkisendurskoðanda á Úrvinnslusjóði frá árinu 2022, skýrslu starfshóps um hlutverk framleiðenda í hringrásarhagkerfi frá sama ári og nýrrar umbúðatilskipunar sem vænta má á vettvangi Evrópusambandsins. Skýrslu ráðherra skal vísa til umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar.“
Veit hv. þingmaður ástæðu þess að meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar gerir ekki sams konar breytingartillögu um að Alþingi berist skýrsla um Úrvinnslusjóð og þessa endurskoðun? Er það ekki einmitt mjög mikilvægt að við fáum skýr svör um hvernig þessari vinnu vindur fram á þessum tímamótatímum?