154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[17:19]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst varðandi það að gervigreindin geti hjálpað okkur að skilja flókin lög. Jú, auðvitað getur tæknin hjálpað okkur að setja hluti í samhengi og ég held að lagasafnið sé einmitt gott dæmi um stað þar sem hægt er að beita gervigreindinni mjög markvisst til þess að ná fram upplýsingum sem eru aðgengilegri. Við eigum samt að gera þá kröfu til lagasafnsins að það sé aðgengilegt án þannig hjálpartækja. Lagamál á ekki að vera það óaðgengilegt eða það illa fram sett að við getum ekki, nánast hver sem er, bara tekið upp lög og skilið hvað stendur í þeim. En þetta er góð fílósófering sem við eigum kannski betur síðar í einhverjum öðrum málum.

Af hverju leggur meiri hlutinn ekki til samsvarandi breytingartillögu og við í minni hlutanum? Það er auðvitað ákveðin lenska hjá meiri hlutanum að vera að beina alls konar hlutum til stjórnvalda í texta nefndarálita og láta eins og það sé jafn sterkt og að binda hluti í texta laganna sjálfra. Það er einfaldlega ekki þannig. Það er miklu auðveldara að hunsa það sem eru einföld tilmæli í nefndaráliti. Ef við viljum virkilega setja ráðherra fyrir það verkefni að ýta í gang endurskoðun á regluverki úrvinnslugjalds þá er langeinfaldast að gera það bara með breytingartillögu sem setur inn bráðabirgðaákvæði, sem er ekki einu sinni það íþyngjandi fyrir ráðherrann. Ef ráðuneytið er í alvöru að fara af stað í þessa vinnu — það er nú þegar búið að eiga samtöl við Úrvinnslusjóð og Samband íslenskra sveitarfélaga — þá væri samþykkt breytingartillögu af þessu tagi einfaldlega hvatning; skýr tímalína og þinglegur vilji sem sýnir ráðherranum hvert skuli stefna. Það er eitthvað sem mér finnst meiri hlutinn alltaf of feiminn við að gera, (Forseti hringir.) að segja ráðherranum hvað það er sem okkur á þinginu finnst.