154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[17:22]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er hér með ræðustúf sem mig langar að flytja og hann er svona: Lög nr. 103/2021 innleiddu þrjár tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins en með þeim voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framlengda framleiðendaábyrgð og látnar sæta úrvinnslugjaldi. Í lögum um úrvinnslugjald er framleiðandanum og innflytjandanum gert skylt að gefa upp þyngd og tegund umbúða utan um vöru en í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er þeim heimilt að greiða úrvinnslugjald í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka nr. 18 við lögin. Mér dettur nú í hug Ari Eldjárn þegar hann er að gera grín, þá segir hann þegar hann sér rómverskar tölur: Í viðauka XVIII. Hvað sem það þýðir, en það er 18 reyndar á íslensku. Jæja, nema hvað, eins og sagan fer voru lög nr. 128/2004 sett fyrir rúmlega 20 árum og breyttu lögum um úrvinnslugjald. Úrvinnslugjald var fyrst sett á umbúðir úr pappa, pappír og plasti og síðan þá hefur álagning úrvinnslugjalds á umbúðir grundvallast á þeirri meginreglu að framleiðendur og innflytjendur gefi upp þyngd umbúða við tollafgreiðslu. Með lögum nr. 114/2005 kom í fyrsta sinn heimild í lögin fyrir gjaldskylda aðila til að styðjast við reiknireglur í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar umbúða vöru fást ekki og samhliða voru settar reiknireglur í viðauka við lögin. Áðurnefnd lög nr. 103/2021, sem voru EES-innleiðingar, leiddu til þess að nauðsynleg væri uppfærsla á viðauka 18 og var það gert með lögum nr. 127/2022. Skömmu eftir gildistöku viðauka 18 komu í ljós vandkvæði þar sem stundum geta þau tilvik komið upp þar sem innflytjendur vara hafa ekki upplýsingar um meginsöluumbúðir líkt og reiknireglur viðauka 18 gera ráð fyrir, með tilheyrandi vandræðum við ákvörðun álagningar, kostnaði og töfum.

Þetta frumvarp sem við ræðum hér er einmitt til að mæta þeim vanda sem ég hef lýst enda er með frumvarpinu lagt til að sett verði inn tímabundin heimild til að ákvarða úrvinnslugjald miðað við líklegustu tegund söluumbúða þegar innflytjandi getur hvorki gefið upp þyngd og tegund umbúða né meginsöluumbúðir. Reynslan af framkvæmd viðauka 18 síðastliðið ár hefur einnig dregið úr þörf á þessari uppfærslu. Allar upplýsingar sem uppfærslan byggist á og liggja til grundvallar ákvæðum um líklegustu tegund söluumbúða eru fengnar frá Úrvinnslusjóði. Hér er því í nokkuð flóknu máli verið að koma með heimildir til að einfalda innflutningsaðilum að sjá hvaða gjöld þeir eigi að greiða, þ.e. úrvinnslugjaldið fyrir vörurnar sem fluttar eru inn, falli þær undir lög um Úrvinnslusjóð. Frumvarp þetta felur ekki í sér innleiðingu en efni þess er að hluta ætlað að stuðla að því að framkvæmd framlengdrar framleiðsluábyrgðar sé í samræmi við skuldbindingar Íslands á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Framlengd framleiðendaábyrgð er almennt talin nauðsynlegur þáttur í virku hringrásarhagkerfi. Til að lágmarka vistspor þarf að draga úr óþarfa, skapa visthæfari vörur og viðskiptamódel og halda úrgangi og öðru hráefni í hringrás. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, skilgreinir framlengda framleiðendaábyrgð sem umhverfisstefnu þar sem framleiðendur eru gerðir ábyrgir fyrir vöru eftir að notkunartíma hennar er lokið. Með þessu færist ábyrgð varðandi framkvæmd og fjármögnun frá sveitarfélögum yfir á framleiðendur og innflytjendur. Með öðrum orðum er tilgangur framlengdrar framleiðendaábyrgðar að framleiðandi og innflytjandi vöru beri ábyrgð á henni og umhverfisáhrifum hennar allan lífsferilinn, þar með talið áhrifum sem felast í vali á efnum í vöruna og áhrifum á notkun hennar og meðhöndlun hennar þegar hún er orðin að úrgangi.

Hugmyndafræðin gengur út á að framleiðendur axli ábyrgð á að lágmarka umhverfisáhrif allan líftíma varanna. Á grundvelli þessa er framlengd framleiðendaábyrgð almennt talin nauðsynlegur þáttur í virku hringrásarhagkerfi. Fyrirkomulag framlengdrar framleiðendaábyrgðar getur því verið útfært á ýmsan hátt og ábyrgðin getur verið margvísleg að eðli og virkni. Ýmist axla framleiðendur ábyrgð sína hver í sínu lagi eða í félagi við fleiri framleiðendur sem er mun algengara. Mismunandi er hversu langt framlengd ábyrgð framleiðenda nær. Ekki er hlaupið að því að meta þann árangur sem framlengd framleiðendaábyrgð skilar með einhverri nákvæmni og ekki hefur tekist að koma auga á bestu venjur í þessu sambandi eða hagkvæmasta fyrirkomulagið þegar inn í spilar skortur á nauðsynlegum gögnum og áskorunum eða greina áhrif framlengdrar framleiðendaábyrgðar frá öðrum þáttum sem hafa áhrif og þá er mikill breytileiki slíkra krafna sem takmarkar möguleika til samanburðar á mismunandi kerfum eða milli landa. Engu að síður eru vísbendingar um að kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar stuðli að aukinni sérsöfnun úrgangs, minni förgun og auknu endurvinnsluhlutfalli, stærri mörkuðum fyrir endurunnið hráefni og minni kostnaði hins opinbera við að meðhöndla úrgang.

En aftur að tæknilegu hlið frumvarpsins. Frumvarpið inniheldur nokkrar lykilbreytingar. Númer eitt er breyting á skilgreiningu rafhlaðna og rafgeyma til samræmis við lög um meðhöndlun úrgangs. Númer tvö eru skýrari ákvæði um álagningu úrvinnslugjalds á ökutæki sem nú er lagt á við nýskráningu ökutækja í stað tollafgreiðslu. Númer þrjú er endurskoðun á tollskráningarnúmerum og reiknireglu til að tryggja rétta álagningu gjaldsins. Númer fjögur er tímabundin heimild til að ákvarða úrvinnslugjald út frá líklegustu tegund umbúða þegar upplýsingar um meginsöluumbúðir liggja ekki fyrir.

Frumvarpið mun hafa áhrif á framleiðendur og innflytjendur, almenning og sveitarfélög. Áhrif frumvarpsins á atvinnulífið eru margvísleg fyrir fyrirtæki sem flytja inn eða framleiða vörur með umbúðum. Mun frumvarpið gera álagningu úrvinnslugjalds skilvirkari og ætti að vera auðveldara fyrir fyrirtæki að uppfylla skyldur sínar og tryggja að þau greiði rétt úrvinnslugjald. Auk þess mun frumvarpið leysa ákveðna tæknilega erfiðleika sem hafa komið upp við álagningu gjaldsins. Þetta er mikilvægt fyrir fyrirtæki sem hafa átt í vandræðum með að fá réttar upplýsingar um umbúðir. Með þessum breytingum fá fyrirtækin svigrúm til að laga sig að nýjum kröfum sem auðveldar þeim að uppfylla skyldur sínar án þess að það valdi þeim óþarfakostnaði eða -töfum.

Frumvarpið hefur einnig áhrif á umhverfisvernd. Með því að tryggja réttmæta álagningu úrvinnslugjalds er stuðlað að því að endurvinnsla og endurnýting umbúða verði markvissari. Þetta er í takt við markmið um hringrásarhagkerfi þar sem leitast er við að lágmarka úrgang og hámarka nýtingu hráefna. Áhrif frumvarpsins á sveitarfélög eru einnig margvísleg en þau bera ábyrgð á söfnun og förgun úrgangs. Með því að tryggja réttmæta álagningu úrvinnslugjalds verður fjármögnun þessara verkefna áreiðanlegri sem stuðlar að betri þjónustu við íbúa og bætir umhverfisvernd. Fyrir almenning er mikilvægt að úrvinnslugjald sé lagt á á réttan hátt þar sem það hefur bein áhrif á verðlag og þjónustu.

Í lokin er vert að minnast á að frumvarpið byggist á ítarlegu samráði og samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Það tekur mið af þeim áskorunum sem hafa komið upp við framkvæmd laganna á undanförnum árum og miðar að því að tryggja skilvirkari og sanngjarnari álagningu úrvinnslugjalds.

Forseti. Mig langar að fjalla aðeins um helstu ábendingar Ríkisendurskoðunar þegar stjórnsýsluúttekt var gerð á Úrvinnslusjóði árið 2022. Þar komu fram fjölmargar ábendingar um hvað mætti betur fara hvað lýtur að Úrvinnslusjóði. Sagði þar m.a. í niðurstöðukaflanum, með leyfi forseta:

„Styrkja þarf starfsemi Úrvinnslusjóðs. Úrvinnslusjóður þarf að styrkja starfsemi sína. Gera verður þarfagreiningu, fjölga starfsfólki og styrkja þekkingu er lýtur að verkefnum sjóðsins. Á grundvelli þarfagreiningar þarf einnig að bæta þau kerfi sem halda utan um starfsemi og verkefni sjóðsins. Skrá þarf verkferla, koma á innra eftirliti og uppfæra skilmála um meðhöndlun úrgangsflokka með reglubundnum hætti. Þá þarf að bæta upplýsingalöggjöf til almennings, stjórnar og hagsmunaaðila um forsendur úrvinnslu- og endurgjalda og skýra verkaskiptingu milli starfsfólks og stjórnarmanna.“

Svo sagði einnig, með leyfi forseta:

„Bæta þarf eftirlit með innheimtu úrvinnslugjalds. Tryggja þarf skilvirkt eftirlit með því að þeir sem eiga að greiða úrvinnslugjald skili sér á gjaldendaskrá og koma á reglubundnu samráði milli Skattsins og Úrvinnslusjóðs í þessu sambandi. Í þeim tilvikum sem undanþágur eru heimilar þarf að meta kosti þess að endurgreiða úrvinnslugjald á grundvelli staðfestra útflutningsgagna í stað þess að gjöld séu felld niður við innflutning. Erfitt er að staðfesta að útflutningur muni eiga sér stað síðar.“

Jafnframt sagði einnig, með leyfi forseta:

„Endurskoða þarf tollskrá, koma þarf á reglubundnu samráði Skattsins og Úrvinnslusjóðs vegna endurskoðunar tollskrárnúmera með tilliti til úrvinnslugjalda. Þá þarf Úrvinnslusjóður að beita sér fyrir uppfærslu viðauka við lög um úrvinnslugjald samhliða breytingum á tollskrá.“

Og einnig, með leyfi forseta:

„Sannreyna þarf endanleg áhrif úrgangs. Koma þarf á skilvirkum leiðum til að sannreyna raunveruleg afdrif úrgangs að því marki sem unnt er. Kalla þarf nú þegar eftir gögnum, bæði frá þjónustuaðilum og ráðstöfunaraðilum, sem sýna fram á magn og tegund ráðstöfunar. Setja þarf fram skýra skilmála um hvaða gagna sé krafist til staðfestingar og hvernig vottun þeirra skuli háttað. Þannig verði stuðlað að því að meðhöndlun úrgangs verði í samræmi við lög og markmið. Ítarlegri gögn stuðla einnig að því að upplýsingar um úrgangstölfræði verði áreiðanlegri.“

Og áfram hélt ríkisendurskoðandi, með leyfi forseta:

„Stuðla þarf að aukinni endurvinnslu innanlands. Skoða þarf möguleika þess að auka innlenda endurvinnslu t.d. með hækkun endurgjalda. Slíkt fyrirkomulag myndi þjóna markmiðum laga um úrvinnslugjald og einfalda eftirlit með ráðstöfun úrgangs. Sú tilhögun getur þó talist ríkisstyrkur samkvæmt EES-samningnum og því þarf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti að tilkynna slíkt með formlegum hætti og gera viðeigandi lagabreytingar.“

Og loks var síðasta ábending ríkisendurskoðanda, með leyfi forseta:

„Efla þarf stuðning ráðuneytis og eyða ágreiningi. Efla þarf stuðning ráðuneytis þegar upp koma álitamál í starfsemi Úrvinnslusjóðs, m.a. vegna innleiðingar nýrra laga. Greiða þarf úr ólíkri túlkun innan stjórnar sjóðsins varðandi sérstaka söfnun og gæta þess að Úrvinnslusjóður noti rétta hvata til að stuðla að árangursríkri innleiðingu hringrásarhagkerfis. Þá þarf ráðuneytið að leggja aukna áherslu á gæði og áreiðanleika gagna og tölfræði um úrgang.“

Ég velti því fyrir mér hversu mikið af þessum atriðum hafi fengið umfjöllun þingsins og það væri áhugavert að vita ef aðrir hér í salnum geta veitt mér upplýsingar um það.