154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

úrvinnslugjald.

924. mál
[17:36]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér áhugavert mál sem ég verð að viðurkenna að er dálítill doðrantur og það er snúið að átta sig alveg á innihaldi þess, enda er frumvarpið tæplega 60 blaðsíður og 50 blaðsíður ekkert nema töflur. Þar koma fram ekki aðeins ný krónutölugjöld, skilagjöld, að mér skilst vegna hinna ýmsu plasttegunda, málmtegunda og fleiri hluta. Þetta eru mjög langar töflur og mjög lítið letur og erfitt að átta sig á þessu, það áttar sig enginn á þessum töflum satt að segja, svo það liggi algjörlega fyrir. En til þess að við hér í 2. umræðu þessa merka máls áttum okkur aðeins betur á innihaldinu tel ég rétt að reifa nokkur sjónarmið sem fram koma í greinargerð frumvarpsins um tilefni þess og nauðsyn. Þar segir, með leyfi forseta:

„Með lögum nr. 103/2021, sem tóku að fullu gildi 1. janúar 2023 og innleiddu m.a. tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850, (ESB) 2018/851, (ESB) 2018/852 og (ESB) 2019/904, voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framlengda framleiðendaábyrgð og látnar sæta úrvinnslugjaldi.“

Það er verið að fjölga tegundum umbúða sem falla undir framlengda framleiðendaábyrgð og þær látnar sæta úrvinnslugjaldi.

„Samkvæmt lögum um úrvinnslugjald skulu framleiðendur og innflytjendur gefa upp þyngd og tegund umbúða utan um vörur en í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er þeim heimilt að greiða úrvinnslugjald í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka XVIII við lögin.“

Þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er heimilt að greiða ákveðið úrvinnslugjald í samræmi við viðaukann. Þetta er mikilvæg regla svo að það falli enginn milli skips og bryggju í þessum málum.

„Með lögum nr. 128/2004, sem breyttu lögum um úrvinnslugjald, var úrvinnslugjald fyrst lagt á umbúðir úr pappa, pappír og plasti og síðan þá hefur álagning úrvinnslugjalds á umbúðir grundvallast á þeirri meginreglu að framleiðendur og innflytjendur gefi upp þyngd umbúða við tollafgreiðslu.“

Hér er um mikilvæga reglu að ræða, það er gríðarlega mikilvægt að framleiðendur og innflytjendur gefi þetta upp við tollayfirvöld.

„Með lögum nr. 114/2005 kom í fyrsta sinn heimild í lögin fyrir gjaldskylda aðila að styðjast við reiknireglur í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um þyngd umbúða vöru fást ekki og samhliða var settur sérstakur viðauki við lögin með reiknireglum.“

Við erum hér að fjalla um það þegar annars vegar eru ekki staðfestar upplýsingar um þyngd og þegar hins vegar liggja ekki fyrir upplýsingar um umbúðirnar sjálfar, tvö atriði.

„Breytingarnar sem urðu með lögum nr. 103/2021 leiddu af sér nauðsynlega uppfærslu viðauka XVIII við lögin og var með það gert með lögum nr. 127/2022.“

Þetta er sem sagt forsaga þessa máls, þessa heila doðrants af EES-innleiðingum sem gera það að verkum að nú fer enginn lengur með neitt til Sorpu án þess að borga hálfan handlegginn. Þetta er forsagan. En hvað veldur því að gera þarf frekari breytingar á lögunum sem eru jú hér til umræðu? Jú, það er aðeins fjallað um það hérna í greinargerðinni og þar segir, með leyfi forseta:

„Fljótlega í kjölfar gildistöku viðauka XVIII komu í ljós vandkvæði í þeim tilvikum þegar innflytjendur og tollmiðlarar hafa ekki upplýsingar um meginsöluumbúðir, líkt og reiknireglur viðauka XVIII gera ráð fyrir, með tilheyrandi vandræðum við ákvörðun álagningar, kostnaði og töfum.“

Hér er verið að fjalla um það að reglurnar náðu ekki þegar innflytjendur höfðu ekki þessar upplýsingar til að miðla til tollmiðlara.

„Til að mæta þeim vanda er með frumvarpi þessu lagt til að sett verði inn tímabundin heimild til að ákvarða úrvinnslugjald miðað við líklegustu tegund söluumbúða þegar innflytjandi getur hvorki gefið upp þyngd og tegund umbúða né meginsöluumbúðir.“

Það er sem sagt verið að áætla það með líkum hver sé líklegasta tegund söluumbúðanna þegar innflytjandi getur hvorki gefið upp þyngd eða tegund umbúða né meginsöluumbúðir. Þetta er grundvallaratriði svo tollayfirvöld séu upplýst um þetta svo það sé hægt að reikna út umbúðagjald, sem byggir á ákveðnum upplýsingum. Í þessum tilvikum liggja þessar upplýsingar ekki fyrir og þá er verið að álykta um það að við ætlum að nota líklegustu tegund söluumbúðanna þegar innflytjandi hefur ekki þessar upplýsingar eða getur a.m.k. ekki gefið þær.

„Reynslan af framkvæmd viðauka XVIII síðastliðið ár hefur einnig dregið fram þörf á að uppfæra hann, annars vegar með því að bæta inn fleiri möguleikum fyrir meginsöluumbúðir tiltekinna tollskrárnúmera og hins vegar með því að gera viðeigandi lagfæringar á hlutfallstölum fyrir önnur tollskrárnúmer. Allar upplýsingar sem uppfærslan byggist á og liggja til grundvallar ákvæðum um líklegustu tegund söluumbúða eru fengnar frá Úrvinnslusjóði.“

Upplýsingarnar sem byggja á og eru grundvallaðar á þessari áætlun koma frá Úrvinnslusjóði sjálfum. Ef innflytjandi getur ekki upplýst um það hver tegundin er, hver þyngdin er og hverjar séu meginsöluumbúðir þá er það byggt á líkum sem grundvallast á upplýsingum frá Úrvinnslusjóði. Hér er verið að gera eins konar ágiskun eða áætlun um hver tegundin af umbúðunum er þegar nægilegar upplýsingar liggja ekki fyrir.

Já, þetta er nefnilega vandamál og það er verið að biðja fyrirtæki að flokka sitt rusl eftir upplýsingum sem þau búa bara alls ekki yfir. Er þetta svona eða svona plast? Það er bara mjög erfitt að segja. Núna er t.d. verið að biðja okkur um að flokka plastið í Sorpustöðvunum í annars vegar plastfilmu og hins vegar umbúðaplast. Ég fór um daginn með plast utan um parketdúk í Sorpu og það er svona hálfgerð filma utan um dúkinn en að sama skapi eru þetta sannarlega umbúðir. Nú setti ég þetta í góðri trú í umbúðagáminn en fékk svo aldeilis skammir í hattinn þegar starfsmaðurinn sá til mín því að hann tjáði mér að þetta væri alveg óumdeilanlega plastfilma. Þetta væri plastfilma en ekki umbúðaplast. Svona er vandlifað. Þetta var jú lærð lexía en ég get bara rétt ímyndað mér að það séu fleiri svona dæmi um erfiðleika fólks og fyrirtækja í þessu nútíma EES-vædda umhverfi okkar að losa sig við rusl án þess að gera alla í úrgangskerfinu að persónulegum óvinum. Hér er greinilega þörf á því að upplýsa almenning miklu betur um það hvað tilheyrir hvaða umbúðagámi og hvað ekki. Hér er vissulega munur á plastfilmu og því sem maður getur kallað umbúðaplast og það er flokkað með sitt hvorum hættinum. Að flokka plast á sorphirðustöðvum í annars vegar plastfilmu og hins vegar umbúðaplast getur verið erfitt fyrir leikmenn sem eru kannski að kaupa hluti einu sinni, tvisvar á ári og taka utan af þeim plastið en vita ekki hvort það er plastfilma eða umbúðaplast.

Svo segir áfram í greinargerð frumvarpsins, með leyfi virðulegs forseta:

„Með lögum nr. 103/2021 voru einnig gerðar grundvallarbreytingar á ákvæðum um úrvinnslugjald á ökutæki þannig að nú er gerður greinarmunur á annars vegar úrvinnslugjaldi sem innheimt skal við nýskráningu ökutækja, sem nær þá til ábyrgðar framleiðenda og innflytjenda á úrvinnslu ökutækis, og hins vegar á skilagjaldi á skráningarskyld ökutæki sem innheimt er reglulega af skráðum eiganda ökutækis, sem á móti á rétt á að fá endurgreitt skilagjald fyrir ökutæki þegar því er skilað á móttökustöð til endurnýtingar og förgunar.“

Það eru tvö atriði hér undir, annars vegar er innheimt gjald við nýskráningu og hins vegar skilagjald á skráningarskyld ökutæki sem innheimt er reglulega. Við þekkjum það öll sem eigum bifreiðar.

„Við undirbúning gildistöku þeirra laga var ákveðið að fenginni ábendingu Skattsins að álagning úrvinnslugjalds á ökutæki færi fram við nýskráningu ökutækis en ekki við tollafgreiðslu, eins og venja er við álagningu úrvinnslugjalds.“

Þegar bifreið er tollafgreidd er ekki lagt á úrvinnslugjald heldur er það gert við nýskráningu eftir að búið er að tollafgreiða bifreiðina og það á að fara að skrá hana t.d. til sölu, þá fær hún íslensk númer.

„Með 37. gr. laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023, nr. 129/2022, var því gerð sú breyting að í stað orðsins innflutningur í 2. málsl. 33. gr. laga nr. 103/2021 kom nýskráning. Til að tryggja að álagning úrvinnslugjalds leggist í öllum tilvikum á framleiðendur og innflytjendur í samræmi við hugmyndafræði framlengdrar framleiðendaábyrgðar, en ekki á eiganda, er nauðsynlegt að skerpa á ákvæðum laganna hvað þetta varðar.“

Hérna er verið að tryggja það að úrvinnslugjaldið leggist á framleiðendur og innflytjendur sem er algerlega í samræmi við þessa hugmyndafræði um framlengda framleiðendaábyrgð en ekki á eigandann, sem erum við sem eigum bifreiðarnar.

„Unnið hefur verið að tæknilegri lausn með Skattinum til að álagningin nái því markmiði sem að var stefnt en einnig er nauðsynlegt að gera breytingar á lögunum, m.a. að kveða skýrar á um gjalddaga og innheimtu gjaldsins og samræma ákvæði laga nr. 162/2002 breyttri álagningu á ökutæki. Aðrar breytingar eru lagfæringar vegna ábendinga Úrvinnslusjóðs eða sem leiða af gildistöku laga nr. 103/2021.“

Hér er sem sagt verið að leiðrétta eitthvert misræmi sem hefur skapast milli úrvinnslugjalds vegna bifreiða og úrvinnslugjalds vegna annarra vara. Það er nýskráningin sem skiptir máli vegna bifreiðanna, við úrvinnslugjaldið, ekki tollafgreiðslan, en það er tollafgreiðslan sem skiptir máli við ákvörðun úrvinnslugjalds vegna annarra vara.

Gott og vel, það er góðra gjalda vert að leiðrétta mistök. En mig langar að kafa aðeins betur ofan í þetta. Ég átta mig ekki alveg á því hvað felst í muninum þarna á milli úrvinnslugjalds vegna bifreiða og úrvinnslugjalds vegna annarra vara. Þá finnst mér það skrýtið að þegar verið er að leiðrétta eitt tiltekið misræmi þá þurfi fleiri tugi blaðsíðna, sem ég gef mér að séu það sem segir í lokin í tilvitnuninni í 2. kafla greinargerðarinnar, þ.e. lagfæringar vegna ábendinga Úrvinnslusjóðs. Er því nærtækast að kafa aðeins ofan í 3. kafla greinargerðarinnar um meginefni frumvarpsins. Þar má finna gagnlega samantekt um þær helstu breytingar sem þessi 60 blaðsíðna doðrantur felur í sér. Þar segir, með leyfi virðulegs forseta:

„1. Lögð er til breyting á skilgreiningu rafhlaða og rafgeyma í lögunum, til samræmis við skilgreiningu í lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, eins og henni var breytt með lögum nr. 103/2021.

2. Í stað orðsins úrvinnslugjald í 1. mgr. 5. gr. laganna komi skilagjald í samræmi við aðrar breytingar sem urðu á ákvæðinu við gildistöku laga nr. 103/2021, og jafnframt verði gerð orðalagsbreyting í 4. mgr. til samræmis við markmið laganna.

3. Lagt er til að fyrirkomulag álagningar úrvinnslugjalds á ökutæki verði gert skýrara í ljósi þess að álagningin á sér stað við nýskráningu í stað tollafgreiðslu. Kveðið verði með skýrari hætti á um greiðanda gjaldsins, grundvöll þess og gjalddaga og greinarmunur gerður á þeirri tilhögun og venjubundinni tilhögun álagningar við tollafgreiðslu.

4. Skerpt verði á skyldu gjaldskyldra aðila til að gefa upp þyngd og tegund umbúða við tollafgreiðslu og að það skuli gert á formi sem Skatturinn ákveður.

5. Lagðar eru til lagfæringar á fjórum tollskrárnúmerum í 6. mgr. 7. gr. a, í samræmi við ábendingar Úrvinnslusjóðs.

6. Felld verði brott tilvísun til 5. gr. laganna í 9. gr. þar sem hún á ekki lengur við.

7. Skýrt verði í 10. gr. laganna að Skatturinn annist, auk álagningar skilagjalds, álagningu úrvinnslugjalds á ökutæki.

8. Lögð til breyting á almennri kæruheimild laganna í 13. gr. þess efnis að skýrt sé að heimilt sé að kæra álagningu úrvinnslugjalds á ökutæki skv. 6. gr. eins og gildir um innlenda framleiðslu og álagningu við tollafgreiðslu.

9. Lagt er til að tillögu Úrvinnslusjóðs að tvö tollskrárnúmer færist úr viðauka XI yfir í viðauka XI A.

10. Gerðar verði breytingar á viðauka XVIII við lögin þannig að við hann bætist inngangur sem skýrir virkni reiknireglna sem mælt er fyrir um í viðaukanum. Þá er lögð til uppfærsla á viðaukanum sem felst annars vegar í að bætt er við valmöguleikum um meginsöluumbúðir fyrir tiltekin tollskrárnúmer, sem þegar er getið í viðaukanum, og hins vegar uppfærslu hlutfallstalna tegunda sölu- og flutningsumbúða fyrir tilgreind tollskrárnúmer og meginsöluumbúðir.

11. Gerð er tillaga um lögfestingu bráðabirgðaákvæðis sem felur í sér heimild til að ákvarða úrvinnslugjald miðað við líklegustu tegund umbúða í viðkomandi tollskrárnúmerum í þeim tilvikum þegar innflytjandi hefur ekki upplýsingar um meginsöluumbúðir.“ — Þetta er atriðið sem ég talaði um áðan.

Já, þetta er sem sagt eitthvað aðeins meira en það sem segir í 2. kafla frumvarpsins um að leiðrétta þurfi eitthvert misræmi vegna úrvinnslugjalds bifreiða, þarna er bara fullt af atriðum talin upp. 3. töluliður er vissulega um þetta úrvinnslugjald bifreiða, en þarna eru samtals 11 töluliðir. Mér telst svo til að í 1., 2., 5., 6. og 9. tölulið sé einhvers konar lagatæknileg tiltekt. Það er ýmist verið að fella niður lagaákvæði sem eiga ekki lengur við, flytja tiltekin atriði á milli ákveðinna flokka o.s.frv. Gott og vel. Það mætti kannski vera meira af svona reglulegri tiltekt í löggjöf og ekki veitir af.

En þeir eru fleiri töluliðir sem nefndir eru í 3. kafla greinargerðar frumvarpsins. Eftir þessa umfjöllun mína standa nokkrir töluliðir eftir, nánar tiltekið 4., 7., 8., 10. og 11. töluliður. 4. töluliður lýtur að því að skerpt verði á skyldu gjaldskyldra aðila til að gefa upp þyngd og tegund umbúða við tollafgreiðslu og það skuli gert á formi sem Skatturinn ákveður. Gott og vel, meiri skriffinnska. En það er nauðsynlegur þáttur í því ferli að leggja úrvinnslugjald á gjaldskylda aðila að vita nákvæmlega hve þungar umbúðirnar eru og hverrar tegundar þær eru. 7. töluliðurinn er einnig tengdur úrvinnslugjaldi á ökutæki og færir Skattinum vald til að leggja úrvinnslugjaldið á samhliða skilagjaldinu. Hér erum við að tala um tvö gjöld, skilagjald, og svo er lagt á annað gjald samhliða skilagjaldinu sem er úrvinnslugjaldið. Er það sennilega skynsamleg tilhögun þar sem bæði gjöldin eru lögð á á sama tíma. 8. töluliðurinn er til að skýra betur kæruheimild vegna álagningar úrvinnslugjalda og að um slíka kæru gildi sama meðferð og gildir um kæru vegna innlendrar framleiðslu og kæru vegna álagningar við tollafgreiðslu. Það er skynsamleg tilhögun, hygg ég, að færa þessa kæruleið í sama farveg og hinar tvær, fyrst það á að fela Skattinum álagningu gjaldsins í þessu tilviki. Í 10. tölulið segir að við XVIII. viðauka bætist inngangurinn sem skýrir virkni reiknireglna sem mælt er fyrir um í viðaukanum. Ég tel að þetta sé til bóta og það er að mínu mati gagnlegt að skýra með sem bestu móti hvernig reglurnar eiga að virka enda er ein af grundvallarreglum réttarríkisins sú að lög og reglur séu þannig úr garði gerð að almennir borgarar skilji þau þegar fjallað er um þau. Ég er t.d. að reyna að botna eitthvað í þessum úrvinnslugjaldslögum en það er langt frá því að vera leikur einn, það get ég sagt ykkur.

Hér er vissulega um flókið mál að ræða en ég get haldið áfram að tala um 10. tölulið og svo ég tali nú ekki um 11. tölulið þar sem er kveðið á um heimild til að ákvarða úrvinnslugjald miðað við líklegustu tegund umbúða í viðkomandi tollskrárnúmerum í þeim tilvikum þegar innflytjandi hefur ekki nægilegar upplýsingar.

Ég tel (Forseti hringir.) að þetta mál sé að vissu leyti mjög flókið og lagatæknilegt eins og hefur komið fram í máli mínu. En ég tel að það sé alls ekki útrætt hér á þingi og við þurfum að fara enn þá betur ofan í það og þessar töflur mætti ráðherra koma og skýra betur fyrir okkur.