154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[20:12]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni barna hefur töluvert verið rætt um skólamál og skólamáltíðir á barnaþingum liðinna ára. Áhersla barnanna sjálfra hefur þar verið lögð á að hollur og góður matur eigi að vera ódýrari og að boðið sé upp á fjölbreyttara og betra fæði. Sjónarmið dýravelferðar hafa einnig komið fram í áherslum barnaþinga og einnig vilja nemendur fá að hafa aðkomu að ákvörðunum um hvað er í matinn í skólanum. Svo finnst börnum afskaplega mikilvægt að öll börn fái mat.

Í rannsóknarskýrslu Kolbeins Stefánssonar félagsfræðings um fátækt barna á Íslandi kom fram að ókeypis skólamáltíðir geti skipt sköpum fyrir börn af fátækum heimilum. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir auka jöfnuð meðal barna óháð fjárhag foreldra og styðja markmið stjórnvalda um að draga úr fátækt meðal barna. Þá má benda á að ófullnægjandi næring er ein af meginorsökum margra langtímaafleiðinga barnafátæktar. Norskar rannsóknir á áhrifum endurgjaldslausra skólamáltíða sýna tengsl þeirra og bættrar næringar við betri námsárangur og mætingu, lýðheilsu og matvælaöryggi. Samkvæmt annarri norskri rannsókn jókst neysla nemenda á hollum mat, sérstaklega þeirra með lægri félagslega og efnahagslega stöðu. Þar kom fram að hugsanlega gætu ókeypis skólamáltíðir dregið úr ójöfnuði í heilsu.

Holl og góð næring er grunnþáttur í þroska barna og ungmenna. Matarmenning og viðhorf til matar mótast einnig í grundvallaratriðum á skólaaldri. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir stuðla að því að allir nemendur fái hollan og næringarríkan mat óháð stöðu forsjáraðila. Því getur skólamatur og stuðningur skólanna við mataruppeldi haft afgerandi áhrif á heilsufar til framtíðar, ekki síst ef matartíminn sjálfur er nýttur betur en nú er og kjörið er að innleiða breyttar áherslur með nýju fyrirkomulagi.

Matartímar barna í grunnskólum einkennast því miður oftar en ekki af tímaskorti sem stuðlar ekki að góðum matarvenjum. Börn eiga rétt eins og annað fólk að geta borðað í ró og notið matarins, jafnframt því að kynnast nýjum matvælum og læra að borða heilsusamlega. Með góðu og heilnæmu umhverfi og næringarríkum skólamáltíðum er hægt að stuðla að góðum matarvenjum og auka matargleði. Breytt hugarfar sem byrjar á gjaldfrjálsum skólamáltíðum getur orðið til þess að hlutverk matmálstíma í skólum snúist ekki bara um að skófla í sig mat á sem stystum tíma heldur verði þeir gagnvirkur hluti af námi þar sem nemendur fræðast um mat og mataræði í samræmi við markmið aðalnámskrár grunnskóla í heimilisfræði. Þannig verður matur sem borðaður er í skólanum ekki einungis mikilvægur næringar- og orkugjafi heldur einnig hluti af sjálfbærnikennslu, næringarfræði og lífsleikni. Matartíma má einnig nota sem undirstöðu í kennsluefni um sjálfbærni, svo sem um það hvaðan maturinn kemur, hvernig hann er ræktaður, hvernig vinna má gegn matarsóun og nýta afganga í moltugerð. Upplýsingar um framleiðslu og matarsóun eru mikilvægur þáttur í bættum matarvenjum. Þannig má auka þekkingu nemenda og meðvitund um áhrif daglegar neyslu tiltekinna fæðutegunda, neyslumynstur, uppruna matvæla og heilnæmi matar, en þetta eru lykilþættir í því að móta ábyrga neytendur framtíðarinnar ásamt því að kenna börnum að huga að heilsu sinni til langframa. Þá er að sjálfsögðu mikilvægt að fyrirbyggja að gripið verði til þess að nota unna ódýra matvöru til að framleiða skólamáltíðir.

Næring er þýðingarmikil fyrir þroska nemenda og starfsorku. Börn sem eru vel nærð hljóta að njóta skólagöngu sinnar betur. Skólamáltíðir eiga að standa öllum börnum til boða óháð fjárhagsstöðu aðstandenda þeirra. Þau eiga að hafa skýlausan rétt til að njóta þeirra líkamlegu ekki síður en andlegu næringar sem samfélagið er sammála um að sé forsenda lífs og starfs í lýðræðisþjóðfélagi.